Felgurnar eru með matta áferð og eru glæsilega hannaðar með breiðum örmum og djúpum skurðum.
Á Urban Cruiser eru hliðarspeglarnir rafdrifnir, litaðir og upphitaðir með stefnuljósi.
Stílhrein innfelld þokuljós tryggja að þú sérð og sést betur í jafnvel hinni dimmustu þoku.

Fyrir aukið öryggi eru stefnuljós innbyggð í hliðarspeglana.
Urban Cruiser er 3930 mm langur og 1725 mm á breidd, þrátt fyrir að vera ekki mjög stór er innanrýmið furðulega mikið. Sveigjanlegt farangursrýmið er hægt að auka í 673* lítra með því að leggja niður aftursætin.

* 749 lítra á 2WD útgáfunni.
Í Urban Cruiser er hugað að einstaklingnum. Einstakur "fljótandi" miðjustokkur er með stílhreinum mælum og nýstárlegum stjórntækjum.
Leðurklætt stýri og leðurklæddur gírstangarhnúður í stíl auka á fágun innanrýmisins. Fyrir aukin þægindi eru rofar í stýrinu til að stjórna hljómkerfinu og Bluetooth. Hljóðinngangur fullkomnar svo pakkann.
Staðalbúnaður er kristaltært hljómkerfi með geislaspilara og MP3 með 6 hátölurum fyrir hreina tónlistarupplifun.
Rafdrifnar rúður að framan og aftan gera öllum farþegum auðvelt um vik að njóta ferskra vinda.
• Geymsluhólf
• Drykkir og sími
• Tvöfalt hanskahólf
• Glasahaldari
• Hurðavasar
• Flöskuhaldarar

Urban Cruiser er hannaður með nóg af handhægum geymsluhólfum til að gera ferð þína þægilegri. Hanskahólfið er tvöfalt. Hurðavasar að framan gera ráð fyrir skjölum í A4 stærð. Það er einnig hólf fyrir flöskur í hurðunum að aftan.
Tog hámarkað

Við hefðbundnar aðstæður á "Auto" stillingu er aflinu veitt um framhjólin eingöngu. Fjórhjóladrifskerfið dreifir togi sjálfkrafa á afturhjólin þegar þess þarf til að tryggja að hröðun, stöðugleiki og hemlun verði með sem bestum hætti og eldsneytisnýting sé í lágmarki. Þegar stillt er á "Lock", aðeins þörf á í mikilli hálku, er togkrafti veitt á annanhvorn öxulinn í hlutföllum við veggrip.

Hámarks grip og stöðugleiki

Fyrir besta hugsanlega grip er Urban Cruiser útbúinn stöðugleikastýringu (VSC) með spólvörn (TRC). Spólvörnin hindrar að hjólin spóli við inngjöf. Stöðugleikastýringin stillir sjálfkrafa vélarafl og beinir hemlunarátaki á rétt hjól til að ná stjórn á undir- eða yfirstýringu í hálku eða við neyðaraðstæður.
Til að þú og farþegar þínir upplifi sem þægilegasta ökuferð er Urban Cruiser með L-laga MacPherson gormafjöðrun að framan og snerilfjöðrun að aftan.
Urban Cruiser býður snjallar umhverfislausnir sem skila kraftmiklu jafnvægi minnkaðrar eldsneytiseyðslu, minni koltvísýringsútblæstri og framúrskarandi aksturseiginleika. Allt sem staðalbúnað.
Útblástur koltvísýrings(CO2) í 1,33 lítra Dual VVT-i bensínvélinni á Urban Cruiser er aðeins 129 g/km* miðað við blandaðan akstur, hann nær bestum árangri í sínum flokki. Auk þess nær hann miklu úr bensíndropanum, eldsneytiseyðsla í blönduðum akstri er aðeins 5,5 lítrar* á hundraðið.

1,4 lítra D-4D dísilvélin er fyrsta AWD vélin í heiminum til að skila aðeins 130 g/km í útblæstri koltvísýrings í blönduðum akstri.

* Með Stop & start kerfinu
"Stop & Start" tækni Toyota stöðvar vélina sjálfkrafa þegar Urban Cruiser stöðvar á rauðu ljósi eða við svipaðar aðstæður*, til að auka eldsneytissparnað og minnka útblástur. Vélin ræsist á ný hnökralaust um leið og þú stígur á kúplinguna og undir eins getur þú keyrt af stað.

* "Stop & Start" kerfi Toyota er hannað til að vinna undir ákveðnum aðstæðum, vinsamlegast hafið samband við söluaðila fyrir nánari upplýsingar.
Nýja 1,33 lítra Dual VVT-i bensínvél Toyota skilar bættri akstursframmistöðu. Hámarks afl er 100 DIN hestöfl með 132 Nm 3800 sn/mín togi og gerir Urban Cruiser kleift að ná 100 km/klst. á 12,5 sekúndum.

Við hönnun á nýju 1,33 lítra Dual VVT-i vélinni hafa verkfræðingar Toyota náð að minnka núning á hreyfanlegum hlutum umtalsvert.
Nýja 1,4 lítra D-4D dísilvélin hefur verið hönnuð til að framleiða enn meira tog á litlum hraða. Þetta þýðir að Urban Cruiser hefur afl til að takast á við hinar erfiðustu akstursaðstæður í næstum hvaða umhverfi sem er.

Verkfræðingum Toyota hefur tekist að minnka núning allra hreyfanlegra hluta í vélinni. Útkoman er aukin afköst og minna slit.
Toyota hefur nýtt sér þróaða verkfræðitækni til að hanna hvarfakút (DPF) sem endurnýjast án þess að eyða eldsneyti aukalega.
Urban Cruiser hefur verið hannaður með höggdeyfandi yfirbyggingu. Höggþunganum er dreift í gegnum trausta grindina og honum beint í undirvagninn, til verndar ökumanni og farþegum. Höggdeyfandi uppbygging vélarhlífarinnar er gerð til að vernda gangandi vegfarendur við árekstur.

Að auki eru sérstakar höggdeyfandi varnarplötur undir mælaborðinu til að vernda fætur. Styrktarbitar í hurðum að framan og aftan veita svo aukna vernd.
Til að tryggja öryggi allra farþega er Urban Cruiser með sjö SRS loftpúða, til að mynda loftpúðagardínur og hnéloftpúða fyrir ökumann sem komið er haganlega fyrir til að draga úr áverkum við árekstur. Þessi heildarvörn er staðalbúnaður og gerir Urban Cruiser leiðandi í sínum flokki.
Við árekstur skynjar kerfið að mjóbak farþega þrýstist af miklum krafti á sætisbakið. Höfuðpúðinn færist þá sjálfkrafa á ská upp og fram til til að grípa höfuðið. Þetta dregur úr höggi á hálsinn og minnkar líkurnar á sveifluáverkum við aftanákeyrslu.
Staðalbúnaður á Urban Cruiser er diskabremsur að framan og aftan útbúnar stöðugleikastýringu (VSC). Stöðugleikastýringin beitir hemlun á viðeigandi hjól til að forða því að bíllinn renni til þegar beygt er eða keyrt er á hálu yfirborði.

Ef þú gefur of skart inn og hjólin missa grip og byrja að spóla þá grípur spólvörnin (TRC) inní og minnkar vélaraflið til að ná gripi.
Við eðlilegar aðstæður er keyrt með framhjólunum. En á lausu eða hálu yfirborði tekur fjórhjóladrifð* (AWD) sjálkrafa við og dreifir togkrafti á milli fram- og afturhjóla til að hámarka grip og stöðugleika. Þetta hámarkar einnig eldsneytissparnað.

*Aðeins 1,4 lítra dísil
ABS-hemlunarkerfi hjálpar þér að ná stjórn með því að jafna rafrænt hemlunarþunga milli allra fjögurra hjólanna í samræmi við grip hvers hjóls fyrir sig. Rafræn hemlajöfnun (EBD) vinnur með þessu með því að hámarka dreifingu hemlunarþunga á milli hjólann. Saman hindra þessi tvö kerfi að hjólin læsist og gera þér kleyft að stýra frá hindrunum um leið og þú nemur staðar.
3 punkta ELR (Emergency Locking Retractor) öryggisbelti að framan með forstrekkjurum og álagsvörn eru staðalbúnaður. Einnig er áminning á öryggisbelti bæði fyrir ökumann ogfarþega frammí og farþega afturí.