Spurningar og svör
Verð ég að skipta á milli aflgjafa?
Prius skynjar sjálfkrafa notkun bensíngjafar til að ákvarða hvort ekið sé með rafmótor, bensínvél eða báðum í senn og skiptir snurðulaust á milli aflgjafa. Ökumaður keyrir bifreiðina á hefðbundinn hátt.
Þarf ég kapla til að endurhlaða bifreiðina ?
Nei, Prius hleður sig sjálfur, safnar saman á hugvitsamlegan hátt umframorku sem verður til við hemlun og útblásturshita. Ökumaður þarf ekkert að aðhafast. Líftími rafgeymisins ræðst af akstursaðstæðum. 5-ára ábyrgð er á rafgeymi (frá skráningardegi bifreiðar) eða 100.000 km ábyrgð, hvort sem fyrr verður.
Er flókið mál að keyra Prius?
Það er einfalt að aka Prius. Ýttu á ræsitakkann, stígðu á bensíngjöfina og taktu af stað. Skýr og einföld stjórntæki gefa þægilega og upplífgandi akstursupplifun. „Full hybrid“ tæknin er það fullkomin að ökumaður þarf ekkert að aðhafast til að hún virki.
Dregur vistvæn skilvirkni úr afli bílsins?
Við hjá Toyota viljum hámarka bæði akstursánægju og skilvirkni þannig að jafnvægi sé á milli beggja þátta. Vélin er 136 DIN hö. og skilar afar miklum afköstum með umhverfisvernd á heimsmælikvarða. Prius nær 100 km/h á 10,4 sekúndum, býður framúrskarandi aksturseiginleika og hljóðlátan gang á miklum hraða.
Ætti umhverfisvænn bíll ekki að vera minni umfangs?
Prius er í passlegri stærð fyrir fjölskylduferðir, fyrirtækjaferðir og daglegar útréttingar. Hann er nógu stór til að vera þægilegur og öruggur á lengri ferðum og nógu lítill til að vera lipur og skemmtilegur innanbæjar.
Er um einhvern falinn kostnað að ræða - er dýrt að reka hann?
Ekki er um neinn falinn kostnað að ræða. Í raun er eina leyndarmálið afar lítill rekstrarkostnaður fyrir eiganda bifreiðarinnar. Hann er sá lægsti í þessum flokki. Hybrid Synergy Drive® felur í sér eldsneytiskostnað – og eigandinn nýtur 5-ára ábyrgðar á tvinneiningum. Minni viðhaldskostnaður. Hærra endursöluvirði.
Gefur Prius frá sér koltvísýring?
Keyrt á allt að 45 km/klst. í u.þ.b. 2 km aðeins á rafmagnsmótor. Þú notar ekki einn dropa af bensíni og losar ekki gramm af koltvísýringi. Þegar gefið er í og bensínvélin fer í gang, jafnar Hybrid Synergy Drive® út flæði eldsneytis ásamt raforkunni til að lágmarka útblástur..
Hver er munurinn á tvinnbifreiðum og rafmagnsbifreiðum?
Rafmagnsbifreiðar eru eingöngu knúnar áfram af rafmagnsmótor og starfa eingöngu á skilvirkan hátt við lítinn hraða - án útblásturs. Tvinnbifreiðar sameina bestu eiginleika bensínvéla og rafmagnsmótora til að gefa kraftmikla hröðun og framúrskarandi afköst á miklum hraða.
Eru allar tvinnbifreiðar eins?
Nei, þær eru ekki allar eins. Í boði eru tvær meginútfærslur tvinnkerfa: tvískipt útfærsla (full hybrid) og samhliða (mild hybrid)
Tvískipt útgáfa Toyota er sveigjanlegasta kerfið, en það starfar með aðskildum rafmagnsmótor og rafali. Rafallinn, mótorinn og bensínvélin geta starfað á samræmdan hátt við akstur til þess að skila hámarksskilvirkni, afköstum og afli. Það sem er einstakt við „full hybrid“ er að það gerir kleift að keyra eingöngu á rafmagni og endurvinna áður ónýtta orku. Kostir: minni eldsneytisnotkun og minni útblástur koltvísýrings. Í stuttu máli stendur „full hybrid“ fyrir fullkomna akstursánægju.
Til samanburðar getur samhliða kerfi (mild hybrid) ekki nýtt sér vélarorku og framleitt rafmagn á sama tíma. Slíkt fyrirkomulag eyðir meira eldsneyti og leiðir til aukins útblásturs koltvísýrings .
Hver eru umhverfisáhrifin frá framleiðslu til förgunar?
Prius hefur minni umhverfisáhrif á líftíma bifreiðarinnar en hefðbundin bifreið. Í samanburði við hefðbundnar bensín- og díselbifreiðar er útblástur koltvísýrings frá Prius um 37% minni en sambærilegar tölur er varða framleiðsluferlið.
Sérhannaðar umhverfisvænar verksmiðjur nota sjálfbær hráefni á öllum framleiðslustigum bifreiðarinnar. Við endurvinnum og endurnýtum eins marga hluta hennar og kostur er. Endurunnið plast frá okkur er notað í t.d. mælaborð. Mögulegt er að endurheimta um 95% af þyngd bifreiðarinnar og meira en 85% eru endurvinnanleg.
