Full hybrid, fullkomin ánægja

Nýr Prius sameinar 1,8 lítra VVT-i bensínvélina við tvo rafmagnsmótora. Tvískipt útfærslan þýðir að vélin og rafmótorar starfa á sjálfstæðan hátt. Tvinnkerfið greinir aksturslag þitt sjálfkrafa og ákveður hvort keyra skuli á rafmagni, bensíni eða báðu til að skila hámarksafköstum, þar sem skiptin á milli beggja orkugjafa eru án nokkurs átaks.

Það gerir mögulegt að keyra vélina og rafmagnsmótora samtímis til að ná hámarkssvörun og skilvirkni við akstur. Niðurstaðan er æsispennandi og kraftmikið afl upp á 136 DIN hestöfl, ásamt framúrskarandi eldsneytissparnaði upp á 3,9 l/100km og aðeins 89 g/km útblástur koltvísýrings.
Björt og hagkvæm

Exe útgáfan er með glæsilegum nýjum LED framljósum ásamt sjálfvirkri hæðarstillingu og þvotti á framljósum. Góð sýn, orkusparandi LED bremsuljós eru einnig staðalbúnaður á grunnútgáfu Prius.
Njóttu loftkælingar og sparaðu orku

Prius er búinn byltingarkenndu loftræstikerfi knúið háþróuðum sólarrafhlöðum sem starfa meðan Prius bifreiðinni er lagt.* Að auki er í honum heimsnýjung, fjarstýrð loftkæling* Hún gerir þér kleyft að minnka hitastigið inni í bílnum áður en þú kemur aftur í Prius sem hefur verið lagt. Kveiktu á loftræstingunni úr fjarlægð og njóttu þeirrar ánægju að snúa aftur í loftkældan bíl sem lagt hefur verið í sólskini.

*Aukabúnaður á Exe útgáfu.
Hönnun sem fer ekki á milli mála

Hönnun yfirbyggingar Prius er í senn kraftmikil og skilvirk. Straumlínulöguð yfirbyggingin er prófuð og þróuð í hágæða loftaflslíkani og í fullri stærð í vindgöngum. Loftviðnámsstuðullinn er einungis 0,25Cd sem er það besta í þessum flokki. Að auki bætir einkennandi vindskeið að aftan aksturseiginleikana og há þaklína eykur höfuðrýmið til muna.
Taktu það með þér

Með aftursætin uppi býður Prius upp á fjöldskylduvænt farangursrými eða 446 lítra. Leggðu aftursætin niður til að stækka rýmið í 1120 lítra. Farangursól með krókum fylgir með sem staðalbúnaður.
Áberandi útlit

Prius og Prius Exe koma með 17" álfelgum með flötu ytra byrði til að hámarka afköst og veita Prius stílhreint útlit.
Umhverfistákn

Viðmið framtíðarbíla í yfir áratug, Prius hefur skilað meira en einni milljón eigenda sinna um allan heim, framúrskarandi eldsneytissparnaði og einstaklega litlum útblæstri. Á nýjum Prius hafa verkfræðingar Toyota betrumbætt kerfin sem fyrir eru og bætt við einstakri tækni til að skapa endurbætt "Full hybrid" tvinnkerfi, merkt með sérstöku bláu Toyota merki.
Auðvelt aðgengi án lykils

Kerfið gerir kleift að opna og ræsa vélina án þess að taka lykilinn úr vasanum eða töskunni. Bifreiðin skynjar lykilinn og opnast sjálfkrafa þegar togað er í handfangið. Lykillinn kveikir meira að segja ljósið í bílnum þannig að þú eigir auðveldara með að finna hann í myrkri. Einungis þarf að stíga inn og ýta létt á Start/Stop hnappinn til að ræsa eða stöðva vélina. Til að læsa vélinni þarf aðeins að snerta litla hnappinn á utanverðu handfanginu.
Áreynslulaus lagning í stæði

Með sjálfvirkri bílastæðalagningu (IPA)* mjakar Prius sér sjálfur í bílastæðið sem þú valdir. Myndavél aftaná ökutækinu reiknar út hve mikið þarf að beygja til að leggja í stæðið. Þú stjórnar eingöngu hraðanum afturábak.

*Valbúnaður á Sol og Premium útgáfum.
Hátækni með náttúrulegri áferð

Sökktu þér í akstursumhverfi sem er yfirfullt af auðlærðri og snjallri snertitækni. Skapað til að gera akstur þinn auðveldan, endurnærandi og öruggan. Þetta blandast náttúrulegri áferð og býr til fyrsta flokks stjórnklefa sem er í senn róandi og fágaður.

Að auki er plast sem eingöngu er unnið úr plöntum eða blöndu plantna og jarðolíu notað í ýmsum búnaði bílsins, svo sem í innréttingunni, til að draga úr losun koltvísýrings í útblæstri á endingartíma bílsins.
Hversu grænn er akstur þinn?

Vistaksturskjárinn birtir rauntímaupplýsingar um eldsneytisnotkun, yfirlit yfir tvinnkerfið, orkuflæði og fyrri skráningar. Hann sýnir þér hversu hagkvæmur akstur þinn er og aðstoðar þig við að ná færni í vistakstri.
Notalegur og rúmgóður

Prius er í hentugri stærð fyrir fjölskyldur, fyrirtæki og hversdagslegar ferðir. Meðfærilegur og skemmtilegur innanbæjar en samt nógu stór til að vera þægilegur til langferða. Nútímalegt yfirbragð innanrýmisins er hlýtt og býður þig velkominn með nægu rými. Aftursætisfarþegar njóta aukins rýmis og þæginda fyrir fætur og höfuð.
Mjúk og snörp

Akstursánægjan er aukin með mjúkri og viðbragðsfljótri CVT-sjálfskiptingu. Framsækin tæknin skiptir hnökralaust milli vélar og rafmótors með ofurmjúkri gírskiptingu og hröðun, svo ekki sé minnst á bættan eldsneytissparnað.
Veldu þér stillingu

Að viðbættri venjulegri akstursstillingu getur þú nú einnig aukið afl og hagkvæmni með því að skipta á milli EV, Eco og Power stillinga.

EV - Býður uppá allt að 2 km aksturs einungis á rafmagni með engum útblæstri og eldsneytiseyðslu. Eco - Gefur þýðara svar frá vélinni við inngjöf til að draga úr eldsneytiseyðslu. Power - Hámarksnýting á afli vélarinnar og rafmótorsins sem gefur betra akstursviðbragð.
Upplýsingar og hljómstillingar við fingurgóma

Hægt er að kalla fram upplýsingar um akstur, loftkælingu og hljómtæki með fingurgóminum. Myndskýring birtist á mælaborðiðnu þegar þú snertir skynjarann léttilega. Þetta er nýjung á heimsvísu.
Nýjung í skjátækni

Brautryðjandi tækni sem birtir mikilvægar akstursupplýsingar á framrúðunni beint fyrir framan þig. Birtir m.a. upplýsingar um ökuhraða, yfirlit yfir tvinnkerfið og leiðsögn, meðan þú hefur augun á veginum.
Fágaður hljómur

Prius er með kristaltært hljómkerfi með útvarpi, geislaspilara, MP3, WMA og sex hátölurum. Að auki er mini-jack tengi til að tengja við utanaðkomandi tæki. Hljómstillingar eru felldar í stýrið sem hluti af takkavísi í mælaborði.

Fyrir aukin þægindi og tónlistarupplifun er Prius Exe með aukinn búnað, svo sem 6 diska geislaspilara, 8 hátalara, raddstýringu og Bluetooth®.
Handhægt geymsluhólf

Kort, sólgleraugu, bréf, nammi. Allt sem þú gætir þurft á ferðalagi þínu er hægt að geyma í handhægu geymsluhólfi undir armhvílu á miðjustokki.
Áreynslulaus lagning í stæði

Með sjálfvirkri bílastæðalagningu (IPA)* mjakar Prius sér sjálfur í bílastæðið sem þú valdir. Myndavél aftaná ökutækinu reiknar út hve mikið þarf að beygja til að leggja í stæðið. Þú stjórnar eingöngu hraðanum afturábak.

*Valbúnaður á Sol og Premium útgáfum.
Minni útblástur fyrir grænni veröld

Í óþrjótandi leit að fullkomnun í umhverfisvænum akstri hefur Toyota statt og stöðugt lagt mikið af mörkum til að ná stórstígum framförum. Í Prius eru fjöldi tækninýjunga á heimsmælikvarða sem vinna saman við að minnka koltvísýringsútblástur: aðeins 89g/km, þökk sé Toyota Hybrid Synergy Drive (HSD), ótrúlegar niðurstöður fyrir bíl í þessum stærðarflokki. Full hybrid, fullkomin ánægja.
Veldu þér stillingu

Að viðbættri venjulegri akstursstillingu getur þú nú einnig aukið afl og hagkvæmni með því að skipta á milli EV, Eco og Power stillinga.

EV - Keyrt allt að 2 km einungis á rafmagni með engum útblæstri og eldsneytiseyðslu. Eco - Gefur þýðara svar frá vélinni við inngjöf til að draga úr eldsneytiseyðslu. Power - Hámarksnýting á afli vélarinnar og rafmótorsins sem gefur betra akstursviðbragð.
Hrein afköst

Njóttu hressandi afkasta fullviss um það að þú ert að aka á framúrskarandi hagkvæman hátt. Prius stærir sig af samanlögðu heildarafli upp á 136 DIN hestöfl og hröðun í 100 km/klst. á 10,4 sekúndum - það jafnar afköst hvaða hefðbundinnar 2,0 lítra bílvélar sem er.
Hljóðlaus afköst

Til að taka hljóðlaust af stað settu þá fótinn á bensíngjöfina og leggðu af stað. Rafmótorarnir framkalla 60kW, keyra á miklum snúningi fyrir öflug afköst og eyða ekki bensíni, gefa ekki frá sér útblástur eða hljóð þegar keyrt er á EV stillingu.
Aðeins 3,9 lítrar á hundraðið

Fjölbreyttar tækninýjungar frá Toyota vinna að því að ná framúrskarandi eldsneytisnýtingu. Þú munt nota aðeins 3,9 lítra af bensíni á hverja 100 km á ferðalagi þínu. Þetta þýðir að þú ættir að getað keyrt allt að 1200 km á einum tanki.
Afslappaður akstur

Með radar skynjurum metur ACC kerfi Toyota (Aðlögunarhæfur hraðastillir) veginn framundan og stillir hraða bílsins sjálfvirkt til að halda stöðugt þeim hraða sem þarf til að halda nægilegri fjarlægð við bílinn fyrir framan. Og niðurstaðan? Jafnari og minna þreytandi akstur.

*Valbúnaður á Premium útfærslu.
Framúrskarandi stöðugleiki

Ásamt einstakri hagkvæmni þá er Prius þægilegur bíll. Hann er snarpur knúinn rafmótorunum og þegar haldið er út fyrir bæinn og hraðinn aukinn tekur þú stjórn á vegunum með framúrskarandi aksturseiginleikum, frábærum stöðugleika og hljóðlátum akstri á hámarkshraða.
Aktu eðlilega - Prius sér um restina

Ýttu á Start hnappinn, gefðu í og þú ert komin(n) af stað. Hybrid Synergy Drive tæknin er það þróuð að hún les sjálfkrafa hvernig inngjöfin er notuð til að ákvarða hvort keyrt er á rafmótorunum, bensíni eða báðu og skiptir hnökralaust á milli. Allt sem þú gerir er að keyra eðlilega og slaka á.
Bensínvélin er aðskilin frá tveimur rafmagnsmótorum, en það gerir Prius kleyft að skila stanslaust hámarks afköstum og orku á hvaða akstursstigi sem er.

Ólíkt nokkru á götunum í dag getur aðal rafmótorinn keyrt bílinn á rafmagninu eingöngu. Með 60 kW úttaki getur bíllinn farið upp í 45 km/klst allt að 2 km leið (EV stilling), og minnkar þá eldsneytiseyðslu og útblástur. Hinn rafmótorinn getur hlaðið rafhlöðuna sjálfstætt á hvaða tímapunkti sem er.

Stop & Start kerfið minnkar eldsneytiseyðslu enn frekar með því að nota rafmótorinn eingöngu til að ræsa bílinn og tryggir hraðari og mýkri endurræsingu.
Ný fyrirferðalítil rafhlaðan með þróaðri og traustri NiMH tækni skilar meiri orku (27 kW) og hleðslu heldur en nokkuð annað tvinnkerfi. Endurnýjun orku er hámörkuð með afkastamiklu innbyggðu kælikerfi. Rafhlaðan er einnig endingargóð - hún dugir allan líftíma bílsins. Rafhlaðan hleður sig sjálf þegar þú hemlar.
Byltingarkennd reimarlaus 1,8 lítra vél sem starfar ólíkt öðrum vélum vegna einstakrar Atkinson hringrásar sem minnkar eldsneytiseyðslu i aðeins 3,9 lítra á hundraðið í blönduðum akstri.

Fyrirferðalítil og létt hönnun Hybrid Synergy Drive kerfisins dregur úr þyngd bílsins og eykur afköst. Þegar ekið er á miklum hraða er vélarhljóði haldið í lágmarki þökk sé auknu slagrými vélarinnar.
Ný CVT sjálfskiptingin veitir hnökralausa skiptingu á milli hefðbundnar vélarinnar og rafmótorsins og eykur eldsneytissparnað og jafnari hröðun. Létt hönnun og íhlutir sem valda litlum núningi minnka orkutap um allt að 20%. Veldu á milli EV, Eco og Power akstursmáta auk venjulegrar akstursstillingar.
Öruggari og stöðugri ferð

Stöðugleikastýring+ (VSC+) er staðalbúnaður á Prius. Við snögg umskipti við akstur eða á hálum vegum bætir kerfið stýrishjálp til að vega á móti yfir- eða undirstýringu. Við neyðaraðstæður getur ökumaður fundið fyrir að stýrisaflið vinni í tiltekna átt til að leiðrétta akstursstefnuna.

Ef að ökumaður gefur of mikið í og hjól missa grip og fara að spóla dregur spólvörnin (TRC) sjálfkrafa úr vélarafli og stýrir hemlaafli til að ná gripi á ný.
Skynjarar staðsettir undir bílnum að framaverðu nema og reikna út möguleikann á árekstri við aðra bíla eða hluti framundan, og setur af stað röð öryggiskerfa. Bremsuaðstoðin sendir frá sér hljóð, sætisbeltin strekkjast sjálfkrafa og sjálfvirkur bremsubúnaður kemur inní ferlið. Þetta dregur úr mögulegu höggi og skemmdum ef árekstur verður.

*Valmöguleiki í EXE gerðum.
Sjö löftpúðar til öryggis

Prius er búinn sjö SRS-loftpúðum, þ.m.t. loftpúðum fyrir hné ökumannsins. SRS-loftpúðar (tvíhólfa) ökumanns og farþega í framsæti hafa tvö þrýstistig, sem greina hversu nálægt loftpúðanum er setið og fer útblástur eftir höggþunga til að lágmarka hættu á meiðslum. Það eru SRS-hliðarloftpúðar fyrir framsætin og SRS-loftpúðatjöld fyrir farþega í fram- og aftursætum.
Örugg hemlun

ABS hemlakerfið jafnar hemlunarátak milli allra fjögurra hjólanna til að hvert hjól fái jafnmikið grip. Rafstýrð hemlunardreifing (EBD) bætir þetta með því að hámarka nýtingu á hemlunarþunga hvers hjóls. Saman hindra þessi tvö kerfi að hjólin læsist og gera þér kleift að stýra frá hindrunum á veginum um leið og þú hægir á þér.

Hemlunaraðstoð (BA) getur skynjað nauðhemlun og í aðstæðum þar sem nægum þrýstingi er ekki beitt á bremsurnar, eykur kerfið á kraft hemlunarinnar.
Nauðhemlunarljós (EBS)

Sem staðalbúnaður á Prius er að hemlunarljósin að aftan blikka þegar nauðhemlað er og vara umferð sem á eftir kemur við. Rannsóknir sýna að svona viðvörunarbúnaður getur dregið úr aftanákeyrslum með því að stytta viðbragðstímann um allt að 50%.
Minnkun á sveifluáverkum

Á undan árekstri færast snjallir, virkir höfuðpúðar á framsætunum fram í viðunandi stöðu til að minnka sveifluáverka við aftanákeyrslu.
Afar sterkbyggð grind

Grind og yfirbygging Prius er byggð með árekstrarþolnum eiginleikum og veitir þér og farþegum þínum aukna vernd.
Háþróað öryggi

Við þróun Prius var forgangsatriði að taka öryggisatriði á hærra stig. Langur listi þróaðra virkra og fyrirbyggjandi öryggisatriða og eiginleika tryggja að Prius stenst hæstu öryggiskröfur, hvort sem er fyrir ökumenn, farþega eða gangandi vegfarendur.