Nýtt málmhúðað grill gerir bílinn glæsilegan, undirstrikar kraftalegt útlitiðog beinir lofti til öflugrar vélarinnar.

Lúxusútfærslan er með sérstökum 20 tommu álfelgum sem gera Land Cruiser 200 enn glæsilegri.

Skær LED-ljós eru notuð í afturljósasamstæðuna í stað hefðbundinna ljósapera, svo bíllinn er mun sýnilegri og öruggari.
Bakkskynjarar að framan og aftan hjálpa ökumanni að greina hindranir beint fyrir aftan og við horn bílsins.
Þessir skynjarar nema magn rigningar, velja réttan þurrkuhraða í samræmi við það og auka þannig þægindi og öryggi.

Þeir greina birtuskilyrði og kveikja sjálfkrafa á aðalljósunum þegar rökkva tekur og einnig þegar ekið er um illa upplýst svæði eins og t.d. í gegnum göng.

Ljós þurfa að vera stillt á "Auto"

Þegar þú kemur þér fyrir í Land Cruiser 200 áttu eftir að meta það mikils hversu þægilegur og rúmgóður hann er. Stórt og vandlega skipulagt mælaborðið er augljóslega hannað með notagildið í huga og er með stórum og þægilegum stjórnrofum og fyrsta flokks tæknibúnaði. Þó er farþegarýmið óneitanlega glæsilegt. Vandað leðuráklæðið á sætunum og fágað útlitið og það hversu hljóðlátur bíllinn er minnir óneitanlega á fólksbíl.

Skýr og þægileg stjórntækin eru með vönduðum, fjölnota upplýsingaskjá og vel sjáanlegum Optitron-mælum.

Þeir eru auðlesanlegir í allri birtu og draga þannig úr augnþreytu og sjá einnig til þess að allar upplýsingar séu þér innan handar, hvort sem þú vilt fylgjast með meðalhraða eða hitastigi fyrir utan.

Loftræsting í Land Cruiser 200 er ein sú besta í flokki fjórhjóladrifinna bíla: Hún er ótrúlega fljót að hækka og lækka hitastigið og er að auki með fjögurra svæða aðgreinda hitastillingu og 28 loftop sem þýðir að öllum líður vel inni í bílnum, hvernig sem viðrar.

Baksýnisspegill með glýjuvörn eykur öryggi þegar ekið er í myrkri með því að draga stórlega úr glampa af ljósum bílanna fyrir aftan þig.

Lyklalaus opnun gerir lífið auðveldara með því að læsa og taka hurðir úr lás og kveikja og slökkva á ljósum inni í bílnum þegar þú nálgast eða yfirgefur hann. Með ræsihnappi er það leikur einn að ræsa vélina.

Hægt er að fá leiðsögukerfi með raddleiðbeiningum á mörgum evrópskum tungumálum sem valbúnað í mælaborð.

Leiðsögukerfið er með Bluetooth™-kerfi sem býður upp á handfrjáls símtöl. Aðgerðir eru sýndar á litaskjánum og þeim er einnig stjórnað þaðan.

Þegar bakkað er kemur upp á skjáinn útsýni úr bakkmyndavél sem gefur gott útsýni yfir það pláss sem tiltækt er og einnig hindranir, séu þær til staðar.

Það er ótrúlega góður hljómur í 9 hátalara Pioneer-hljómtækjunum með 6 diska geislaspilara með MP3 og WMA. Til að auka þægindi og öryggi eru stjórntækin í stýrinu.

Glæsilegt farþegarýmið býður upp á mikið geymslurými fyrir persónulega muni, bæði fyrir farþega í fram- og aftursætum. Sem dæmi má nefna flösku- og glasahaldarar og jafnvel kælihólf* sem er tengt við afkastamikla loftræstinguna.

Neðri hluti afturhlerans er meira að segja með handhægu geymsluhólfi.

* Aðeins í bensínútfærslu

5 þrepa gírkassinn í bensínútfærslu Land Cruiser 200 sameinar á fullkominn hátt frábæra aksturseiginleika og litla eldsneytisnotkun. Hann er búinn AI-SHIFT-tækni sem lagar gírskiptinguna að þér og veginum

Undirvagnsgrind með vindingarviðnámi - sú sterkasta frá Toyota hingað til - hentar vel fyrir akstur í torfærum og er einnig fyrirtaks undirstaða fyrir öryggisbúnað Land Cruiser 200.

Hún eykur einnig dráttargetu og dregur úr titringi í farþegarýminu.

Virk hæðarstilling (AHC) stjórnar hæð bílsins frá jörðu. Í lágri stillingu er hann stöðugri þegar greitt er ekið og auðveldara að komast upp í hann. Þegar hann er hækkaður er auðveldara að aka honum á vegleysum.

Ásamt AVS-fjöðruninni (Adaptive Variable Suspension) dregur kerfið einnig úr veltingi í beygjum og gerir Land Cruiser stöðugri og þægilegri.

A-TRC er hugvitssamleg spólvörn sem heldur Land Cruiser 200 á ferðinni við hvaða aðstæður sem er, innan sem utan vegar. A-TRC getur beitt hemlunarkrafti á eitt hjól sem spólar og dreift aflinu jafnt á milli hinna þriggja sem eru með grip.

Afraksturinn er sá að hjól með grip fá alltaf kraf, þegar spólvörninni er beitt þar sem nauðsyn krefur.

Glæný stýring fyrir burðargetu fjaðranna, stjórnar eiginleikum fjöðrunarinnar þegar beygt og hemlað er. Hún dregur stórlega úr veltingi og stuðlar þannig að auknum þægindum fyrir farþega.
Skriðstýring (einungis fáanleg með V8 bensínvél) heldur jafnri og stöðugri ferð þegar ekið er á vegleysum. Ökumaður þarf ekki að hafa áhyggjur af eldsneytisgjöf eða hemlum og getur því einbeitt sér að því að stýra.
HAC-kerfið nemur og kemur í veg fyrir að bíllinn renni aftur á bak þegar ökumaður færir fótinn af hemlum yfir á eldsneytisgjöf. Þannig er auðveldara og öruggara að taka af stað upp brekku.
Búið er að endurbæta hina margrómuðu 4,7 lítra V8 bensínvél í Land Cruiser með fullkominni VVT-i tækni (Variable Valve-Timing – with intelligence). Hún er ótrúlega kraftmikil - 212 kW (284 DIN hö.) og með 445 Nm togkraft - tilvalin fyrir skjótan, öruggan framúrakstur og krefjandi áskoranir utan vega

Magnað snúningsátak og togkraftur.

4,5 lítra, 210 kW (282 DIN hö.) V8 dísilvélin tryggir ótrúlega frammistöðu Land Cruiser í vegleysum.

650 Nm togkraftur sér til þess að akstursupplifunin er ólýsanleg. Þó ekki á kostnað fágunar, því vélin er mun hljóðlátari en áður. Hún er einnig ótrúlega sparneytin; eldsneytiseyðslan er ekki nema 10,2 lítrar/100 km.

Land Cruiser 200 státar af framúrskarandi árekstraöryggi, þökk sé mjög sterku farþegarýminu. Það er með ótrúlega sterkri yfirbyggingu og sérhönnuðum krumpusvæðum að framan og aftan. Að auki getur grindin tekið á sig mikið högg við árekstur.
Alls eru 14 loftpúðar í bílnum, þ.á m. loftpúðar fyrir brjóst og hné ökumanns og farþega í framsæti, auk hliðarloftpúða. Loftpúðatjöld, sem vernda farþega fyrir höggi á hlið bílsins, blásast út samstundis ef skynjarar nema árekstur eða veltu.
Bíllinn er búinn stillanlegum höfuðpúðum sem færast upp og áfram nánast samstundis ef til aftanákeyrslu kemur. Bæði atriðin hjálpa til við að koma í veg fyrir hálsmeiðsl við aftanákeyrslu.

ABS-hemlakerfi fyrir torfærur lagar sig að alls konar undirlagi - möl, sandi, malbiki og fleira - og hjálpar ökumanni að halda stjórn á bílnum þegar hemlað er snögglega eða á hálu yfirborði.

Það jafnar hemlunarátak með rafrænum hætti á milli allra fjögurra hjólanna í samræmi við grip þeirra. Með því að greina hraðann og aflið sem notað er á hemlana getur hemlunarhjálpin (BA) fundið þegar ökumaður ætlar að nauðhemla og aðstoðað við það.

Stöðugleikastýringin fer í gang þegar kerfið nemur skrið á hjólum. Við erfiðar aðstæður beinir hún hemlunarátaki sjálfkrafa á viðeigandi hjól til að koma ökutækinu aftur á rétta braut.

VGRS-kerfið (Variable Gear-Ratio Steering System) aðlagar stýringuna að aksturlagi þínu.

Á litlum hraða eða í beygjum er stýrið létt og viðbragðsfljótt og aðeins þarf að hreyfa það lítillega til að breyta um stefnu. Á meiri hraða verður stýringin stífari.

Það skilar sér í áhyggjulausum akstri þar sem litlar stýrishreyfingar valda því ekki að bíllinn breyti um stefnu. Þegar þú hægir á þér verður svörunin aftur meiri.