Einn sendibíll, margar útfærslur. Hverjar sem flutningaþarfir þínar eru býður Toyota Hiace lausnina. Hvort sem það er að ferja vörubretti eða fólk, þá er sama blanda notagildis, sveigjanleika og þæginda í boði úr mismunandi útfærslum Toyota Hiace.

Í rekstri skiptir ímynd einnig miklu máli og nýjasta hönnun Hiace tekur mið af því.

Þar má nefna nýtt grill, vélarhlíf, stuðara og framlugtir.
Nýjasta hönnun Hiace er endurmótað grill ásamt nýrri vélarhlíf og ljósahönnun. Ásamt fjölmörgum litum sem eru í boði gerir það þessa þróun á útliti Hiace meira aðlandi
Fyrir hámarks einfaldleika á aðgengi þegar bíllinn er hlaðinn, veita rennihurðir auðveldan aðgang. Þessar víðu hliðardyr eru báðu megin og gera vinnu við þröngar aðstæður talsvert auðveldari.
Hiace gengur út á notagildi og það sannast með tvöföldum afturhurðum sem opnast til hliðanna, þær opnast 180 gráður og veita auðvelt aðgengi. 8 sæta útgáfan er með hlera sem opnast upp og hefur tvær opnunarhæðir. Allar útgáfur af Hiace bjóða uppá þægilega lága hleðsluhæð.
Nýr Hiace bætir við fágunina með því að bjóða uppá rafdrifnar rúður frammí sem staðalbúnað yfir línuna auk öryggislæsingar á hurðir.
Þar sem þú munt eyða stórum hluta vinnudagsins í Hiace bílnum þínum, skipta þægindi miklu máli.

Hugsað hefur verið út í hvert smáatriði þegar kemur að vinnuaðstöðu bílstjóra. Sjálfstæð afturfjöðrun auk margra annarra þátta sem draga úr hávaða og titringi gera akstur Hiace að afslappaðri og þægilegri upplifun

Síðan eru farþegasætin með fullum stuðningi og þæginlegu niðurfellanlegu geymsluhólfi og klemmuspjaldi. Bílstjórasætið er hægt að stilla á ýmsa vegu.

Í 8 sæta útgáfu bílsins er hitun fyrir farþega afturí sem tryggir hámarksþægindi hvar sem setið er í rúmgóðu rýminu.
Þægilegt stillanlegt stýri kemur í veg fyrir að bílstjóri þreytist og auðveldar sýn á mælaborð.

Vinnuaðstaða bílstjóra hefur nútímalegt yfirbragð, t.a.m. silfraðan miðstokk og sérstyrkt sætisáklæði.
Geymsluhólf í miðstokki er tilvalið til að geyma nauðsynleg gögn í seilingarfjarlægð.
Hiace er hannaður til að draga úr rekstrarkostnaði. Rúmgott rými fyrir farminn veitir þér vel nýtta og sveigjanlega flutningsgetu.

Þróuð D-4D túrbó dísil vélin notar nýjustu vélarstjórnunartækni til að tryggja snarpt afl og sem minnsta eldsneytisnotkun.

Sterkbyggt ytra byrðið er hannað til að lágmarka tjón við árekstur og almenna notkun, meðan varahlutir eru hagkvæmir og auðskiptanlegir. Þriggja ára ábyrgð veitir hugarró.
Framúrskarandi gæði Hiace, ending og áreiðanleiki sannast í hinum smæstu smáatriðum: frá sérstyrktu sætisáklæði til hágæðalakks á yfirbyggingu, eða ríkulegs staðalbúnaðar.
Hiace hefur 6,5 rúmmetra mjög sveigjanlegt hleðslusvæði - nóg pláss fyrir tvær europallettur.

Hiace getur borið farm upp að 1.265 kg og með þæginlegri gólfhæð, sem er aðeins 560 mm er hægt að nota lyftara til að ferma og afferma Hiace á fljótlegan hátt.

Þetta þýðir meiri farmur og færri ferðir yfir vinnudaginn.
Styttri útgáfan af Hiace hefur einstaklega krappan beygjuradíus eða einungis 5,5 metra - þetta eykur aksturshæfni Hiace til muna og gerir hann tilvalinn til innanbæjaraksturs.

Inni eru farþegasætin með fullum stuðningi og þæginlegu niðurfellanlegu geymsluhólfi og klemmuspjaldi. Geymsluhólf í miðstokki er tilvalið til að geyma nauðsynleg gögn í seilingarfjarlægð.

Aftur í eru fjöldi festinga til að binda niður farm.

Löng reynsla Toyota af fjórhjóladrifnum ökutækjum er nýtt til fullnustu í Hiace 8 sæta útgáfunni.

Fjórhjólaútgáfan nær fram betra gripi, hefur meiri veghæð og býður aukið öryggi.

Hagkvæmni, mikið tog og áreiðanleiki gerir fjórhjóladrifinn Hiace að öflugum valkosti.

2,5 lítra D-4D með 117 hestöfl og 294 Nm tog, gerir þessa háþróuðu "common rail" túrbó dísil vél byggða til að skila hámarksafköstum.

Með því að nota nýjustu tækni í vélarnýtingu til að stilla sjálfkrafa eldsneytisinnspýtinguna, tímasetningu og magn, tryggir það hámarks svörun við hvaða akstursaðstæðum sem er.
ABS hemlakerfið (Anti-lock Braking System) kemur í veg fyrir að hjólin læsist þegar hemlað er á hálu yfirborði.
Hiace er búinn búnaði sem hefur hingað til tilheyrt fólksbílum. Loftpúði í fullri stærð fyrir ökumann og loftpúði fyrir farþega er staðalbúnaður.
Undirstaða öryggis Hiace er sterk yfirbygging sem útilokar skrölt og verndar ökumann, farþega og farm.
Við árekstur taka sætisbeltaforstrekkjarar við sér til að vernda þig og halda þér tryggilega föstum.

Að viðbættu þessu hafa sætisrammarnir verið sérstyrktir til að þola meira álag.
Í fyrirtækjarekstri eru margir hlutir sem nauðsynlegt er að geta treyst á. Sama hvað vinnudagurinn felur í sér, þá má stóla á seiglu og endingu Toyota Hiace. Hiace hefur þróast og býður nú þann þróttmikla sveigjanleika sem þarf til að uppfylla kröfurnar sem þinn rekstur gerir til hans. Að auki er traustvekjandi hversu vel er gætt að öryggi, og eru öryggispúði ökumanns og ABS staðalbúnaður.
Haganlega hannaður, frábær í notkun og aðveldur í umgengni, Hiace er tilvalið farartæki til að keyra áfram fyrirtækið.