AYGO er byggður með nýjustu tækni og hárnákvæmri gæðastjórnun. Hann hefur verið hannaður til að lágmarka skaða af völdum tjóns - með auðveldlega útskiptanlegum varahlutum Toyota.
Auðkennandi lág sportleg staða AYGO og afgerandi útlínur eru hannaðar til að standa úr í fjöldanum - lítill bíll sem tekið er eftir.
Afturljós með samsetningu krómhringja auka upplifunina á nútímalegum og sportlegum stíl.
Í AYGO Sportpakkanum eru kraftmikil þokuljós sem tryggja góða sýn jafnvel á hinum dimmustu vetrardögum.
AYGO er með 50/50 skiptingu á aftursætum og áföstum höfuðpúðum sem gera ökuferðina þægilegri.

Einnig eru ISOFIX festingar fyrir barnabílstóla.
AYGO skarar fram úr í borgum og bæjum iðandi af mannlífi. Snöggur, lipur og þýður, vegna stærðar hans er einnig auðvelt að leggja honum í hin þrengstu stæði.
6 arma, 14 tommu hjólkopparnir bæta við sportlegt yfirbragð AYGO.
Aðeins 3,4 metrar að lengd er AYGO lítill bíll með mikið innanrými. Farangursrýmið er 139 lítrar, auk þess sem 25 lítrar af rými er í hólfum í hurðum, 8 bökkum, 3 glasahöldurum og hólfi fyrir smámynt. Einnig er nægt höfuðrými fyrir farþega sem eru allt að 1,91 metri að hæð.
Liturinn á lakki bílsins er sami litur og er á innanverðum hurðum og lætur innra byrðið virka rúmmeira og nútímalegra.

Sætisáklæðið er slitsterkt dökkgrátt tauáklæði.
Mælaborðið er nýtískulegt og nett með auðlesanlegum tveggja tóna skjám - auk þess sem stjórnborð fyrir miðstöðina er upplýst í miðjustokki.
Nettur miðjustokkurinn er með útvarpi, geislaspilara og sex hátölurum. Einnig er hljóðinngangstengi fyrir MP3 spilara.
Fyrir þá sem lifa lífinu á hröðum snúningi, þá er snúningshraðamælir fáanlegur sem aukabúnaður.
Jafnvel hinir hagnýtustu hlutir eru hannaðir á flottan hátt - eins og mjúk form loftopa miðstöðvarinnar bera vott um.
Rafstýrðar rúður eru staðalbúnaður í AYGO.
1,0 lítra vélin býður snerpu og afköstu án þess að taka mikinn toll af umhverfinu - eða bankabókinni þinni.

Þökk sé Toyota Optimal Drive. Umhverfisnýjung sem um munar: leiðandi eldsneytiseyðsla (4,5 lítrar á hundraðið) og lítill útblástur - útblástur úr beinskiptu 1,0 lítra vélinni er aðeins 106 g/km... en án þess þó að afköstin minnki.

Þetta er samvinna. Margþætt tækni spilar inn í, frá VVT-i kerfi yfir í notkun á olíu með litlu núningsviðnámi og afar léttri og þéttri hönnun, kjörinni til innabæjaraksturs.
AYGO er fáanlegur með 1,0 lítra VVT-i verðlauna bensínvél sem býður uppá lipurð, afköst og hagkvæmni.
Þökk sé nýju byltingarkenndu kerfi við ísetningu vélar, finnur þú síður fyrir hljóði og titringi undir stýri á AYGO.
AYGO er meira en tilbúinn fyrir "stöðva-taka af stað" umferð og krappar beygjur nútíma borgarlífsins - auk þess sem nett yfirbyggingin gerir þessum afskaplega lipra bíl fært að laumast í hin þrengstu stæði.
Aðeins 3,4 metrar að lengd, einn stysti, liprasti 4ra sæta bíllinn á markaðnum.

3 punkta sætisbelti að framan og aftan, með forstrekkjurum sem veita aukna vernd.

SRS-loftpúðar fyrir ökumann og farþega eru í öllum útfærslum og SRS-hliðarpúðar eru staðalbúnaður í AYGO.

Fyrir frekara öryggi er möguleiki á SRS-lofpúðatjöldum sem valbúnaði.

AYGO hefur hlotið 4 stjörnur í Euro NCAP árekstrarprófunum fyrir öryggi fullorðinna. Hver einasta gerð AYGO er með tvo loftpúða að framan, ABS bremsukerfi með EBD rafstýrðri hemlunardreifingu og viðvörun á öryggisbeltum.
Sérhver AYGO er með ABS bremsukerfi, auk EBD til að dreifa réttu hemlunarafli á hvert hjól í beygjum og við snögga hemlun. Þú tekur einnig eftir hættum úr meiri fjarlægð með aðalljósum sem lýsa áfram yfir 80 metra.
Sterk yfirbygging AYGO er með MISC-kerfi (Minimal Intrusion Cabin System) sem dregur í sig og dreifir höggi við árekstur í gegnum grindina og minnkar líkur á meiðslum á farþegum.
Toyota AYGO er undir áhrifum frá japanskri menningu, mjúkar línur gefa nútímalegt útlit og ýta undir einstaklinginn sem býr í okkur. Innblásturinn að hinni sterku lögun AYGO eru kraftmiklar línur sæþota, en að innanverðu fangar hreint yfirbragðið fágun og spennu hraðbáts. Fyrir utan það býður AYGO upp á frábæra aksturseiginleika og frelsið til að leggja bara af stað.