Aygo

Gerðu eitthvað eftirminnilegt

Frá 2.195.000 kr.

Skoðaðu

Það helsta

 

Útfærslur

Aukahlutir

Ástæður til að eiga Toyota

Skoða allt
Spila

Umhverfið

Með því að framleiða léttari vélar, bæta afköstin, minnka bensín eyðslu og útblástur, tryggjum við að grænn hugsunarháttur okkar skili sér í öllum okkar bílum.

Bílarnir okkar eru ekki það eina sem er leiðandi í þróun grænna fararskjóta. Við hugum vel að öllum þeim umhverfisþáttum sem við koma framleiðsluferlinu sjálfu, allt frá þróun til hönnunar, framleiðslu og sölu, þangað til að endurvinnslu á bílnum í lok hanns lífstíma.

Allt þetta færir okkur nær takmarki okkar: Að framleiða farartæki með engan útblástur.

Sjáðu hvernig Toyota getur hjálpað þér að velja sjálfbæra leið til að ferðast.

Toyota Gæði

Toyota er þekkt fyrir að framkvæma einar víðtækustu gæðaprófanir í bílaheiminum. Allir bílar frá Toyota eru prófaðir í þaul við erfiðustu akstursskylirði. Þetta er gert til að tryggja bæði öryggi og áræðanleika sem hefur orðið til þess að Toyota hefur unnið til margra verðlauna í bílaiðnaðinum.

Það er grant fylgst með því, að gæðastöðlum sé stranglega fylgt í framleiðsluferlinu frá upphafi til enda. Hver og einn liðsmaður Toyota sem vinnur á framleiðslulínunni, veit hvert þeirra hlutverk er og að þeir þurfa að viðhalda ströngustu gæðakröfum.

Ábyrgð

Þessi ábyrgð, sem gildir í 5 ár eða að 160 þúsund km akstri, hvort sem á undan kemur. Toyota á Íslandi greiðir sjálft fyrir þessa ábyrgð til framleiðandans og er hún einn liður í því að tryggja hag Toyota eigenda sem og að hámarka endursöluvirði bifreiða þeirra.

Þjónusta

Þetta kemur sjálfsagt ekki mörgum á óvart sem á annað borð hafa átt í viðskiptum við Toyota.  Starfsmönnum Toyota er einfaldlega eðlislægt að þjónusta viðskiptavini sína vel og þegar kemur að því að yfirstíga áskoranir þá sjá þeir alls engin vandamál – bara lausnir og reyna þannig ávallt að fara fram úr væntingum viðskiptavina sinna þar sem því verður við komið. Þannig hefur það verið í hartnær 40 ár og verður áfram um ókomna tíð.

Þessi eiginleiki starfsfólks Toyota – að einblína á lausnir vandamála, en ekki vandamálið sjálft – á rætur sínar að rekja í menningu Toyota Motor Corporation sem nefnd hefur verið The Toyota Way.

Fjármögnun

Þegar rétti bílinn er fundinn þarf að velja réttu fjármögnunarleiðina. Algengustu fjármögnunar- leiðirnar eru bílalán og bílasamningar, en aðrir möguleikar standa þó einnig til boða. Einnig þarf að huga að tryggingum, en bíll sem er fjármagnaður þarf að vera kaskótryggður allan samningstímann, auk lögbundinnar ábyrgðartryggingar. Nokkrir mikilvægir þættir bætast við ef bifreið er tekin upp í við kaup á nýrri, s.s. greiðsla f. eigendaskipti, ástandslýsing, söluskoðun og veðbönd.

Skoða meira
Draggable window

Aygo smáatriði