Kraftmikil fágun

Nýr Avensis er fágaður, kraftmikill og með framúrskarandi loftflæði. Wagon og Sedan útgáfurnar gefa ákveðinn svip með mjúkum og flæðandi útlínum.

Kraftmikil hönnun með áberandi hjólskálum og einkennandi framgrilli gefur stílhreint og ákveðið yfirbragð.
Að opna og ræsa Avensis hefur aldrei verið auðveldara

Gleymdu venjulegum lykli. Í stað hefðbundinna bíllykla fylgir lítill sendir lyklalausri opnun og ræsingu* sem gerir kleift að taka hurðir úr lás með því einu að snerta hurðarhúninn eða ræsa vélina með því að styðja á hnapp. Það eina sem þú þarft að gera er að vera með sendinn fyrir lyklalausa opnun í vasanum eða töskunni.

*Staðalbúnaður í Avensis Executive.
Ljós og rými að ofan

Framrúðan nær frá vélarhlíf og aftur fyrir höfuð ökumanns*, sem eykur birtu, gefur góða yfirsýn og stuðlar að ánægjulegri akstri.

*Valbúnaður á Avensis Executive Wagon
Felgur sem falla að þínum Avensis og þínum stíl.

Til að bæta við kraftmikil einkenni bílsins eru Avensis Sol og Executive útgáfurnar með sérstakar álfelgur hannaðar í 16" eða 17" stærðum.
Meira pláss fyrir allar þínar þarfir

Nýr Avensis hefur enn meira farangursrými (Wagon 543 lítrar og Sedan 509 lítrar). Mjög auðvelt er að fella niður sætin án þess að þurfa að taka höfuðpúðana af. Armpúði milli aftursæta veitir aðgang að skottinu og eykur lengd farangursrýmis án þess að minnka rými farþega í aftursætum.
HID Bi-Xenon framljós með aðlaganlegu framljósakerfi*

Auðveldara að keyra í myrkri. Þegar Avensis er ekið fyrir horn eða í beygju á veginum er ljósmagnið aukið með hreyfingu ljósgeisla framljósanna og beinir ljósi í akstursleið ökutækisins.

Til að bæta upp þungan farm í skotti lækkar framljósakerfið ljósgeisla framljósanna áður en bíllinn er ræstur. Að auki réttir kerfið geisla framljósanna af við mikla bremsun og inngjöf í akstri.

*Staðalbúnaður á Avensis Executive.
Afturljós með LED tækni

LED ljós kvikna fyrr heldur en hefðbundnar perur og það þarf ekki að skipta um þau. Að auki sjást þau betur af ökumönnum fyrir aftan og auka öryggi.
Glæsilegir og hagnýtir

Silfur þakbogarnir eru vandlega úthugsaðir og gefa Avensis fágað yfirbragð. Þeir koma sem staðalbúnaður, samlagast bílnum vel og auka ekki á hæð hans. Hagnýt hönnun auðveldar uppsetningu þakboga fyrir aukið notagildi þegar þess þarf.
Eðlislæg upplifun gæða umlykur Avensis. Þægindi innanrýmis mynda heild með kraftmiklu ytra byrði og framkalla hljóða tilfinningu um gæði.

Í öllum útgáfum Avensis er svart áklæði staðalbúnaður. Í Executive útgáfu er hægt að velja um svart eða grábrúnt leðuráklæði.

Sol útgáfan er með nútímalega svarta og títaníumáferð á miðjustokki en í Executive útgáfunni er sérstök og vönduð bambusklæðning.
Rafdrifnar stýrisstillingar og stjórn hljómtækja

Að viðbættri lúxustilfinningu af leðri undir fingurgómum* eru þægindin tryggð með rafstýrðum stýrishalla og útdraganlegri stýrissúlu með tveimur stillingum í minni, ásamt haganlega staðsettum stjórntækjum fyrir hljómtæki.

*Avensis Executive.
Nýr Avensis er aðeins 50mm lengri, þrátt fyrir það er eftirtektarverð aukning á plássi í innanrými. Ökumannssætið hefur verið lækkað um 20mm fyrir aukið höfuðrými og sportlegri akstursstöðu sem hentar ökumanni fullkomlega.
Avensis kemur með MP3 WMA samhæfðu útvarpi með geislaspilara og 6 hátölurum. Bluetooth er staðalbúnaður í Sol útfærslunni en með Avensis Executive kemur 11 hátalara Premium hljóðkerfi auk 6 diska geislaspilara.
Optitron mælar

Mælaborðið hefur flæðandi og gæðalegt yfirbragð með skörpum upplýstum hraða- og snúningshraðamælum sem eru umluktir krómhringjum. Optitron skjárinn tryggir skýran aflestur óháð birtuskilyrðum og hjálpar við að viðhalda sýn þinni fram á veginn um leið og þú tekur augun af mælunum.

Vistakstursmælir sýnir hversu hagkvæmur akstur þinn er. Á beinskiptum gerðum er Avensis með gírskiptiljós sem leiðbeinir ökumanni hvenær best sé að skipta upp eða niður um gír.
Sjálfvirk loftræsting

Í Sol og Executive útfærslunum er sjálfvirk tveggja svæða loftræsting staðalbúnaður. Enn einn Avensis eiginleiki sem eykur á þægindi akstursins.
Örugg og traust geymsla

Skipuleggðu verslunarleiðangurinn, farangur eða hvað sem er með nýju farmstjórnunarkerfi* fyrir nýjan Avensis Wagon.

Þetta sveigjanlega kerfi er með stillanlegar brautir og strekkjanlegar ólar til að halda farminum. Hægt er að bæta við stöng til að búa til hagnýt svæði í mismunandi stærðum til að flytja stóra og litla hluti á öruggan hátt.

*Executive útfærslan.
Handhægur eiginleiki sem virkar með því að ýta á takka og krefst því minni fyrirhafnar en hefðbundin handbremsa. Þessi útgáfa af handbremsu er einnig öruggari því hún notar þann kraft sem þarf til að halda bifreiðinnni stöðugri. Að auki skapar það aukið rými með því að fjarlægja handvirku handbremsuna.

Ef Avensis bifreiðin þín er beinskipt getur þú notið góðs af "Drive Away Release" kerfinu. Kerfið skynjar að þú ert að fara keyra bílinn af stað og losar því handbremsuna sjálfkrafa. Einstaklega þægilegur möguleiki þegar tekið er af stað í brekku.
Afslappaðri akstur

Hraðastillir (Cruise Control) er fáanlegur með 2,0 lítra Executive útfærslunni og með 2,2 lítra dísil. Með dísilútfærslunni fylgir einnig hraðatakmarkari.
Ljós og rými fyrir ofan þig

Framrúðan nær frá vélarhlíf og aftur fyrir höfuð ökumanns*, sem eykur birtu, gefur góða yfirsýn og stuðlar að ánægjulegri akstri.

*Valbúnaður á Avensis Executive Wagon
Minni losun koltvísýrings, meira afl og akstursánægja

Ný Valvematic tækni Toyota sker niður koltvísýringútblástur um 10-26% og eykur afl um 3-20%. Valvematic tæknin stýrir stöðugt hvernig ventlarnir í vélinni verka eftir aðstæðum og bæta eldsneytissparnað, tog og viðbragð vélarinnar.

Þetta er allt hluti af Toyota Optimal Drive hugmyndafræðinni sem einblínir á minnkun umhverfismengandi þátta en einnig um leið á hámörkun akstursánægju með auknu afli og togi.
Öruggari og stöðugri akstur

Sjálfvirkt aksturseiginleikakerfi (VSC+) sem eykur þá hefðbundnu vörn er VSC veitir við skyndilegar breytingar á stjórn ökutækisins eða við hliðarskrið hjólbarða. Kerfið eykur stýrisafl sem vinnur gegn veltingi við undirstýringu eða yfirstýringu ökutækisins í neyð. Ökumaður getur fundið fyrir að stýrisaflið vinni í tiltekna átt til að leiðrétta akstursstefnuna og hann getur aðlagað stýringu sína að ábendingum kerfisins.
Meiri stöðugleiki og betra loftflæði

Útlit Wagon og Sedan útgáfanna er kraftmikið jafnt sem fágað. Með því að færa dekkin meira út til hliðanna hafa náðst fram þéttari og krafmeiri áhrif án þess að þyngja bílinn. Húddið hefur verið lækkað og framendinn flæðir fram og afturhlutinn hallar örlítið niður til að ná fram straumlínulöguðum útlínum. Framúrskarandi loftflæði færir loftaflsstuðulin (Cd) niður í aðeins 0,28 á Sedan bílnum og 0.29 á Wagon, sem hjálpar við að minnka koltvísýringsútblástur.
Framúrskarandi lítill hávaði og titringur. Bætt fjöðrun

Til að tryggja afslappaða og fágaða akstursupplifun er Avensis hannaður með þróuðum hljóðlátum vélum með lágmarks veghljóði og bættri byggingu ytra byrðis til að minnka vindgnauð. Samkvæmt hávaða, titrings og stífleikaprófunum er Avensis í fararbroddi í D-flokki bifreiða.
Háþróuð Multidrive S sjálfskipting

Multidrive S er stiglaus sjálfskipting sem eykur jafnt sparneytni, lipurð og hraðaaukningu miðað við hefðbundnar sjálfskiptingar. Fyrir þig þýðir þetta hámarks afköst með lágmarks koltvísýringsútblæstri, auk lipurðar og fágaðrar akstursupplifunar. Allt er þetta hluti af nýju Toyota Optimal Drive hugmyndafræðinni.
Skiptiflipar fyrir skemmtilegri akstur

Í boði með 6 þrepa sjálfskiptingu og Multidrive S sjálfskiptingu (2,0 bensín), skiptifliparnir auka gagnkvæm áhrif á milli ökumanns og bíls. Þú upplifir sanna akstursánægju á nýjum Avensis.
Betri afköst með minni útblæstri

Hvernig velur þú á milli umhverfisvænnar hagkvæmni og vélarafkasta? Núna þarftu þess ekki. Með Toyota Optimal Drive er stöðugum skilvirkum framförum náð með því að hámarka afköst allra vélar- og gírskiptingarhluta með innleiðingu háþróaðrar umhverfisvænnar tækni.

Staðalbúnaður á öllum Avensis bensín og dísil vélum, Toyota Optimal Drive minnkar eldsneytisnotkun og útblástur en hámarkar afköst og akstursánægju. Engin þörf fyrir málamiðlanir.
Framúrskarandi eldsneytissparnaður

1,8 lítra Valvematic bensínvélin skilar 147 hestöflum og kemur Avensis í 100 km/klst í 9,4 sekúndum. Með framúrskarandi eldsneytisnotkun upp á 6,5 lítra á hundraðið miðað við blandaðan akstur framleiðir 1,8 lítra vélin aðeins 154 g/km af CO2 í útblæstri*. Og með Multidrive S sjálfskiptingunni fáanlegri í Sol útgáfu er akstursánægja aukin með lágmarks CO2 útblæstri.

* byggt á Sedan útgáfu.
Kraftmikill akstur með lítilli eldsneytiseyðslu

2,0 lítra Valvematic bensínvélin býður ökumanni upp á heil 152 hestöfl og að ná 100 km/klst á 9,0 sekúndum. Í blönduðum akstri er eldsneytiseyðslan 6,9 lítrar á hundraðið og útblástur CO2 mælist aðeins 163 g/km*. Fyrir jafnvel enn betri akstursupplifun með lágmarks CO2 útblæstri er hægt að velja Multidrive S sjálfskiptinguna fáanlega með Avensis Executive.

* byggt á Sedan útgáfu
Bætt fyrir jafnvel enn meiri afköst

Uppfærð með nýjum háþrýstispíssum og auknum samrásarþrýstingi við 2000 bör er 2,0 lítra D-4D dísilvélin búin háþróaðri tækni til að minnka mengun í útblæstri.

Skilar 126 hestöflum og nær 100 km/klst hraða á 9,7 sekúndum. Með frábæran eldsneytissparnað upp á 5,1 lítra á hundraðið miðað við blandaðan akstur. 2,0 lítra vélin framkallar aðeins 135 g/km af CO2 í útblæstri*, sem gerir hana að eina af þeim umhverfisvænustu í umferð.

* byggt á Sedan útgáfu.
Fágað, kraftmikið og hreint

2,2 lítra D-4D 150 D-CAT dísilvélin er með glænýrri 6 þrepa sjálfskiptingu. Sport hamur "les" hegðun ökumanns og stillir af gírskiptimynstrið. Ökumaður getur einnig notað raðskiptingu með gírstöng eða með gírskiptiflipum í stýri. Útblástur CO2 er 169 g/km*

D-CAT (Diesel Clean Advanced Technology) minnkar skaðlegan útblástur og gerir D-CAT vélina eina umhverfisvænstu dísilvél í heimi fyrir samanlagðan útblástur NOx og sótagna.

* byggt á Sedan útgáfu.
Viðvörunarljós blikka

Viðvörunarljós fyrir neyðarhemlun er staðalbúnaður í Avensis. Þegar um neyðarhemlun er að ræða blikka afturljósin til þess að ökumaður fyrir aftan bregðist hraðar við. Rannsóknir hafa sýnt að slíkt viðvörunarkerfi getur dregið úr aftanákeyrslum um 50%.
Afburða vörn gegn sveifluáverka á höfði

Sem staðalbúnaður eru virkir höfuðpúðar sem draga úr höfuðhreyfingu við aftanákeyrslu. Þegar högg kemur aftan á bílinn þrýstast höfuðpúðarnir fram til að draga úr höfuðhreyfingu.
Sjö loftpúðar auka öryggi þitt

Aukin vörn fyrir þig og farþega þína eru samtals sjö SRS loftpúðar. Það eru loftpúðar fram í fyrir ökumann og farþega, hliðarloftpúðar að framan, fram og aftur gardínuloftpúðar og loftpúði fyrir hné ökumanns.

Avensis hefur hlotið fimm stjörnu hámarkseinkunn í NCAP árekstrarprófunum og 81% fyrir heildarvörn í nýju ströngu matskerfi Euro NCAP. Þetta sannar að hár staðall Toyota á virkum og fyrirbyggjandi vörnum veitir framúrskarandi akstursöryggi. Sjö loftpúðar, stöðugleikastýring+ og virkir höfuðpúðar veita sanna hugarró.

Euro NCAP er sjálfstæð matsstofnun sem leggur raunsannt, faglegt og áreiðanlegt mat á öryggisframmistöðu nýrra bíla. Útfrá nýju ströngu matsferli er gefin einkunn frá einni til fimm stjörnum fyrir heildargæði virkra og fyrirbyggjandi varna. Ökutækið er metið útfrá vörn fyrir fullorðna, vörn fyrir börn, vörn fyrir fótgangandi vegfarendur og öryggisaðstoð.

Toyota kynnir nýja kynslóð Avensis. Avensis er afrakstur óteljandi áskorana. Bíll sem sannarlega skilur ökumann sinn. Þekking og reynsla að baki snjöllum lausnum sem skapa yfirburðaánægju við akstur. Kraftmikill. Áreiðanlegur. Mjúkar, flæðandi línur. Með sterka nærveru, tilbúinn að fanga athygli.
Sjálfgefin gæði Avensis endurspeglast í framúrskarandi þægindum. Velkomin í draumaumhverfið. Bakvið stýrið upplifir þú kosti Toyota Optimal Drive vélartækninnar. Nýstárlegar, vistvænar lausnir sem skapa fullkomið jafnvægi á milli minnkaðrar eldsneytiseyðslu, minni losunar koltvísýrings og óviðjafnanlegrar akstursánægju.
Tær og kraftmikil tækni.