Byggir á 60 ára óviðjafnanlegri reynslu. Nýr Land Cruiser mætir einstökum kröfum viðskiptavina sem vilja eingöngu frábæra frammistöðu við erfiðustu aðstæðum sem gerast, sama hvar þeir eru í heiminum. Engin annar fjórhjóladrifsbíll getur boðið uppá þá samsetningu að vera framúrskarandi bæði á vegi og vegleysum, og jafnvel enn hærri í gæðum og þægindum.
Geta Land Cruiser í akstri á vegleysum hefur verið bætt stórlega með Multi-terrain kerfinu, 4 myndavélar og skjár með leiðbeinandi kerfi fyrir akstur á vegleysum ásamt skriðstýringu (Crawl control). Saman bjóða þessi kerfi, bæði vönum og mjög hæfum bílstjórum sem og þeim óvanari, uppá mikla tæknilega aðstoð og leiðbeiningar. Búnaðurinn kemur sem valbúnaður í VX útgáfu.
Land Cruiser kemur með tveim valmöguleikum á vélum: 207 kW/282 DIN hp 4.0 lítra Dual VVT-i V6 bensínvél og 127 kW/173 DIN hp 3.0 lítra fjögurra strokka turbo dísil vél. Dregið hefur verulega úr CO2 útblæstri vélanna beggja eða um 12%, en einnig skilar turbo dísilvélin eyðslu uppá 8,1 l/100 km og CO2 uppá 214 g/km í blönduðum akstri, en það skilar henni titlinum best í sínum flokki.
Endurbætt sjálfstæð framfjöðrunin og fjölliða afturfjöðrunin er búin rafdrifnum KDSS fjöðrunarbúnaði.
Í fágaðra og rúmbetra farþegarýminu er önnur sætaröð nú færanleg fram og aftur um 135 mm í sjö sæta útgáfunni, mun betri og sveigjanlegri sjálfstæð sætisbök sem hægt er að leggja niður og halla aftur, og auðveldara að komast að öftustu sætaröðinni. Aftasta sætaröðin er sjálfstæð og hægt að hækka hana og lækka, en það er hægt að gera með einum hnappi.
Væntanlegur í janúar 2010.