Auris með Hybrid Synergy Drive® (HSD) er fyrsti full hybrid bíllinn í sínum flokki. Hann hefur tvo rafmótora ásamt 1,8 lítra VVT-i bensínvél, sem vinna saman með orkumikilli skilvirkni. Bíllinn skiptir sjálfvirkt og hnökralaust á milli orkugjafanna. Þú getur ekið eingöngu á rafmagni, eingöngu á bensíni eða notið hugvitsamlegrar samvinnu beggja.
Víðsvegar um heiminn eru yfir 2 millijóna Toyota ökumanna sem nú þegar njóta kosta þessarar áræðanlegu HSD tækni, ásamt einstaklega lítilli mengun í útblæstri (minn en 99/gm*) og frábærrar sparneytni.
Veldu eina af þremur ökustillingum. Rafmagn eingöngu (EV) býður uppá hljóðan og útblásturslausan akstur. ECO ökustilling er fyrir hámarks sparneytni. Veldu Power fyrir hámarks viðbragð og kraft.
Rafmagnið fyrir rafmótorana er enduhlaðið þegar þú hemlar, svo það er engin nauðsyn að hlaða hann handvirkt eða stinga í samband. Auris með HSD er einnig þægilegur, góður og öruggur fjölskyldubíll.
Auris HSD er smíðaður í Evrópu og þarfnast lítils viðhalds. Búnaður bílsins endist lengi sem dregur úr kostnaði fyrir eigandann.
Einstök hybrid hönnun, bæði að utan sem innan eru í boði í Auris HSD og inniheldur meðal annars einstakar álfelgur, grill, stuðara, LED dagljósabúnað, sætisbúnað, mæla og skiptingar.
*89g/km C02 (15" felgur) blandaður akstur
**3.8L/100km (15" felgur) blandaður akstur
Nákvæmari og nánari upplýsingar um búnað og verð fyrir Auris með Hybrid Synergy Drive verða settar í loftið frá og með september 2010. Vinsamlegast heimsækið vefinn aftur fyrir nánari upplýsingar.