Rekstrarleiga
A) ATH. Leigugreiðslur í rekstra/einkaleigu eru aðeins til viðmiðunar þar sem þær reiknast út í erlendri myntkörfu og eru því háðar gengi hverju sinni.
B) Innifalið í rekstrar/einkaleigu: Akstur allt að 20.000.km á ári, olíuskipti, þjónustuskoðanir og annað venjubundið viðhald samkvæmt þjónustubók.
C) Tryggingarfé: Í rekstrar/einkaleigu er farið fram á tryggingarfé sem er trygging fyrir hugsanlegum vanskilum og eða skemmdum á bifreiðinni. Upphæðin greiðist við afhendingu bíls og er geymd hjá viðkomandi fjármögnunarfyrirtæki á meðan á leigutíma stendur. Í lok samnings er upphæðin greidd til baka ef staðið hefur verið við alla skilmála samningsins.
D) Í lok samnings skilar þú bílnum til Toyota. Bíllinn er söluskoðaður og samningur gerður upp.
Annað:
Þegar ný bifreið er afhent þarf að greiða af henni bifreiðagjöld, og þungaskatt ef um dísilbifreið er að ræða.
Rekstrarleiguverðin er hægt að sjá hér: Rekstrarleiguverð
