Fjármögnunarleiðir
Þegar þú hefur fundið rétta bílinn er næsta skref að velja réttu fjármögnunarleiðina. Algengustu fjármögnunarleiðirnar eru bílalán og bílasamningar en aðrir möguleikar standa þó einnig til boða s.s. bankalán og raðgreiðslur. Fjármögnunarfyrirtækin
Bílalán
Bílalán er veðskuldabréf og ert þú því eigandi bílsins frá upphafi. Fjármögnunarfyrirtækið sem þú skiptir við hefur fyrsta veðrétt í bílnum sem tryggingu fyrir láninu. Lánað er til allt að 84 mánaða, en hámarkslán getur farið uppí 80 - 90% af kaupverði bíls. Bíllinn þarf að vera kaskótryggður á samningstímanum.
Helstu kostur bílaláns eru:
- jafnar mánaðarlegar greiðslur.
- öllum lántökukostnaði er dreift jafnt á lánstímann.
- hægt er að greiða aukalega inn á lán eða greiða það upp hvenær sem er á lánstíma.
Kaupleiga
Kaupleiga er kaupleigusamningur milli fjármögnunarfyrirtækis og viðskiptavinar (leigutaka). Í kaupleigu felst að fjármögnunarfyrirtækið kaupir þann bíl sem leigutaki óskar eftir og leigir honum bílinn í umsaminn tíma. Fjármögnunarfyrirtækið er þá skráður eigandi en leigutaki sem umráðamaður. Í lok samningstímans á leigutaki möguleika á að greiða lokaafborgun og eignast bílinn eða nota bílinn sem greiðslu upp í nýjan bíl og gera nýjan samning. Bíllinn þarf að vera kaskótryggður á samningstímanum.
Með kaupleigu ræður þú innan vissra marka hversu há innborgunin skuli vera, oftast þó um 30% af kaupverði. Kaupleigu samningur getur verið allt að 72 mánaða samningur og ákveður leigu-taki í upphafi hversu há lokagreiðslan skuli vera og hagar mánaðargreiðslum í samræmi við það. Þannig getur leigu-taki, innan vissra marka ráðið hverjar mánaðargreiðslurnar eru og sniðið þær að eigin greiðslugetu.
Einkaleiga
Einkaleiga með kauprétti er ný fjármögnunarleið hjá Lýsingu sem gerir þér kleift að leigja bifreið í 12-36 mánuði sem þú skilar aftur til bílaumboðs að þeim tíma loknum. Þessi leið er kjörin fyrir einstaklinga 25 ára eða eldri sem vilja binda lágmarks fé í bifreið og losna við áhyggjur af reglubundnu viðhaldi hennar á samningstíma og endursölu hennar þegar kemur að endurnýjun. Einnig getur þetta form hentað rekstraraðilum sem vilja kaupa notaðar fólksbifreiðar. Dæmi um Einkaleigu
Rekstrarleiga/Bílasamningur
Gengi: Greiðslur í rekstrarleigu/bílasamningi eru aðeins til viðmiðunar þar sem þær reiknast út í erlendri myntkörfu og eru því háðar gengi hverju sinni.
Innifalið í rekstrarleigu: Akstur allt að 20.000 km á ári, olíuskipti, þjónustuskoðanir og annað venjubundið viðhald samkvæmt þjónustubók.
Gjöld: Þegar ný bifreið er afhent þarf að greiða af honum bifreiðagjald. Greiða þarf fyrir eigendaskipti þegar bifreið er sett uppí.
Tryggingafé: Í rekstrarleigu er farið fram á tryggingarfé sem er trygging fyrir hugsanlegum vanskilum og/eða skemmdum á bifreiðinni. Upphæðin greiðist við afhendingu bíls og er geymd hjá viðkomandi fjármögnunarfyrirtæki á meðan á leigutíma stendur. Í lok samnings er upphæðin greidd til baka ef staðið hefur verið við alla skilmála samningsins. Nánari upplýsingar um tryggingarfé færðu hjá sölumönnum.
Í lok rekstrarleigusamnings skilar þú bílnum til þess söluaðila Toyota sem bíllinn var keyptur af, bíllinn er söluskoðaður og samningur gerður upp.
Hvernig er hægt að bera saman lánamöguleika?
Auðveldasta leiðin til að sjá hvaða fjármögnun er ódýrust er að skoða svokallaða árlega hlutfallstölu kostnaðar. Hún endurspeglar allan kostnað við lántökuna og þar sem hún er lægst er árlegur kostnaður lánsins lægstur. Það ber þó að hafa í huga að allar forsendur þurfa að vera þær sömu til að lánamöguleikarnir séu sambærilegir. Þú getur fengið upplýsingar um hlutfallstöluna hjá sölumönnum okkar en einnig kemur hún fram á greiðsluyfirlitinu sem þú færð í hendurnar þegar þú ert að velta fyrir þér tilhögun fjármögnunarinnar.
