Starfsmannastefna Toyota á Íslandi

Hjá Toyota er mannauðurinn mikilvægasta auðlind fyrirtækisins.  Til að lifa samkvæmt því höfum við lagt okkur fram um að skapa starfsumhverfi byggt á sjálfsaga og gagnkvæmri virðingu. 
Starfsmenn fyrirtækisins byggja gildi sín á The Toyota Way: Stjórnunar-, þjónustu- og mannauðsstefnu Toyota.  Gagnkvæm virðing og náin samvinna eru hornsteinar í daglegri starfsemi Toyota. Gildin okkar eru; Áskorun - Stöðugar framfarir (Kaizen) - Þekkingarleit (Genchi Genbutsu) - Virðing - Samvinna.
Liðsheildin og samkenndin sem einkennir fyrirtækið gerir okkur kleift að njóta sigra og takast á við erfiðleika með góðum árangri. Við skilgreinum okkur sem árangurslið, við leiðbeinum, styðjum, hrósum og hvetjum hvort annað.  Þetta ásamt stöðugri símenntun eflir sjálfstraust okkar sem einstaklinga, sem skilar á endanum betra liði og árangursríkara starfi.

Ráðningar
Það er markmið okkar að efla liðsheildina og starfsandann með því að stuðla að ánægðum starfsmönnum sem skila fyrirtækinu hámarksarðsemi. Við leggjum áherslu á að ráða hæft og sveigjanlegt starfsfólk sem fellur vel að þeirri heild sem fyrir er og að The Toyota Way gildunum sem snúa að virðingu fyrir fólki.

Móttaka nýliða og fóstrakerfi
Þegar nýir starfsmenn hefja störf er mikilvægt að þeim finnist þeir velkomnir strax frá fyrsta degi og kynnist starfsumhverfi sínu sem allra fyrst. Nýliðakynningar og fóstrakerfi hjálpa okkur til að svo verði, en einn „fóstri“ er í hverri deild og sér hann um að leiðbeina og fylgja nýja starfsmanninum eftir fyrstu dagana. Fóstrar fara í gegnum þjálfun hvernig standa eigi að móttöku nýliða.

Toyotaskólinn
Markmið Toyota er að starfsmenn fái þá þjálfun sem er fyrirtækinu til framdráttar með bættum innri samskiptum og þjónustu við viðskiptavini og verði starfsmönnum auk þess til frekari þroska og þróunar á því sviði sem þeir starfa á. Í Toyotaskólanum er boðið uppá heildstæða námsstefnu sem ýtir undir aukna hæfni og þekkingu starfsmanna á þeirri vöru og þjónustu sem Toyota er að veita.
Stefnt er að því að starfsmenn séu vel þjálfaðir og meðvitaðir um nýjungar í sinni starfsgrein þannig að fyrirtækið sé ávallt fremst á sínu sviði.

Starfsmannasamtöl
Markmið með starfsmannasamtölum er að skapa jákvæð samskipti á milli starfsmanns og yfirmanns, þar sem starfsmanni er gerð ljós stefna og markmið fyrirtækisins og gefinn kostur á að þróast í starfi og sem einstaklingur. Starfsmannasamtöl fara fram einu sinni á ári.

Starfskynningar
Markmið með starfskynningum er að gera fyrirtækið hæfara til að mæta þörfum viðskiptavina, með því að auka þekkingu starfsmanna á öllum þáttum starfseminnar og samskipti starfsmanna. Starfsmenn eiga þess kost á að fara í aðrar deildir og kynna sér starfsemi deildanna.

Jafnréttisstefna
Fyrirtækið stefnir markvisst að jafnrétti og jafnri stöðu kynjanna innan fyrirtækisins.  Með því móti skal tryggt að mannauður fyrirtækisins nýtist sem best.
Jafnréttisstefnan byggir á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Allir umsækjendur hafa jafnan rétt til vinnu hjá fyrirtækinu og eru ráðningar grundvallaðar af hæfni, menntun og reynslu.

Heilsustefna
Fyrirtækinu er umhugað um heilsu starfsmanna sinna, betri líðan gefur betri starfskraft og jákvæð viðhorf skila sér í betri þjónustu við viðskiptavini okkar.
Árlega styrkir fyrirtækið starfsmenn á margvíslegan hátt til heilsuræktar og heilsueftirlits.
Toyota er reyklaus vinnustaður og því býður fyrirtækið starfsmönnum sem vilja hætta að reykja aðstoð við það.

Fatastefna
Það er markmið fyrirtækisins að starfsmenn séu auðþekkjanlegir og snyrtilegir til fara. Þeir starfsmenn sem eru að þjónusta viðskiptavini fyrirtækisins eru því í fatnaði merktum Toyota.

Fjölskyldu- og einkalíf
Ávallt er reynt að koma til móts við þarfir starfsmanna, eftir því sem við verður komið, hvað varðar að samræma skyldur sínar gagnvart fjölskyldu og starfi með sveigjanleika á umsömdum vinnutíma. 

Nánari upplýsingar eru veittar hjá starfsmannaþjónustu Toyota

Senda á
Prentað þann 4. febrúar 2012