Um Toyota
Toyota gildin í hávegum höfð
Við hjá Toyota á Íslandi lítum með virðingu til árangurs Toyota á alþjóðavettvangi og trúum að þau gildi og siðareglur sem félagið hefur sett sér eigi stóran þátt í velgengni þess. Við höfum fylgt sömu áherslum. Þær eru okkur vegvísar í stöðugri viðleitni til að efla fyrirtækið í þágu viðskiptamanna, starfsmanna og eigenda.
Samstíga í örvandi samstarfi. Við berum virðingu fyrir réttindum hvers annars og líðum ekki ómálefnalega mismunun eða einelti. Við vinnum skipulega og förum í hvívetna eftir stöðlum og leiðbeiningum, s.s. við viðhald og viðgerðir. Á vinnutíma helgum við okkur starfinu og þjónustu við viðskiptavinina. Við tökum tillit til aðstæðna hvers annars og freistum þess að samræma kröfur fjölskyldulífs og vinnustaðar. Við erum liðsheild og störfum saman að því að gera gott fyrirtæki enn betra.
Virðing fyrir lögum og réttindum. Við leggjum okkur í framkróka um að virða lög og reglur. Við berum virðingu fyrir eignarrétti og nýtum hvorki efnisleg verðmæti eða hugverk í störfum okkar eða í eigin þágu án þess að skriflegt leyfi sé til staðar.
Þjónusta í fremstu röð. Við erum þekkt af yfirburða þjónustu. Viðskiptavinir okkar vita og treysta að við leggjum okkur fram við að leysa hratt úr þörfum þeirra og það á sem hagkvæmastan hátt. Við eigum allt okkar undir ánægðum viðskiptavinum og vitum að heilbrigður vöxtur fyrirtækisins byggir á gagnkvæmu trausti. Við hlustum grannt eftir skoðunum viðskiptavina og samstarfsaðila og komum gagnlegum ábendingum á framfæri.
Öryggi í öndvegi. Við leggjum höfuðáherslu á öryggi á öllum stigum þjónustu okkar; við leggjum okkur fram um að kynna kaupendum öryggisbúnað og eiginleika nýrra bifreiða og búnaðar, við viðgerðir lítum við sérstaklega til öryggisþátta og við stöndum ekki að breytingum á bifreiðum sem geta skert öryggi þeirra í umferðinni. Á vinnustað leitum við stöðugt nýrra leiða til að draga úr hættu á óhöppum. Markmiðið er slysalaus vinnustaður og öryggi í umferðinni.
Í sátt við umhverfið. Við leggjum okkur fram um að stunda umhverfisvæna starfsemi, flokkum allt sem til fellur og sendum allan nýtilegan úrgang til endurvinnslu. Við veljum umhverfisvæn efni og aðferðir í öllum okkar störfum og erum stolt af þeirri áherslu sem Toyota og Lexus leggja á bætta orkunýtingu og umhverfisvæna framleiðslu.
Heilindi í viðskiptum. Við trúum því að frjáls og heiðarleg samkeppni skili samfélaginu mestum árangri. Markmið okkar er að vinna traust viðskiptavina með áreiðanleika og yfirburðum í þjónustu. Við forðumst að gera nokkuð sem túlka mætti sem tilraun til að ná viðskiptum fyrir annað en okkar eigin frammistöðu og orðstý. Við gætum þess að vera hvorki veitendur né þiggjendur í neinum þeim mæli sem kveikt gæti efasemdir um heilindi okkar eða hlutlægni í viðskiptum.
Samhljómur við samfélag. Við teljum starfsemi okkar auðga íslenskt samfélag á margvíslegan hátt. Við sjáum sífellt stækkandi hluta þjóðarinnar fyrir öruggum og hagkvæmum bílum og þjónustu sem menn mega treysta. Góðar viðtökur gera okkur kleift að vera traustur og góður vinnuveitandi stórs hóps starfsmanna og leggja um leið mikið af mörkum til samfélagslegra þarfa. Við viljum vera góður og traustur þegn í íslensku samfélagi.