Tilkynnt um innköllun á Toyota Land Cruiser vegna uppfærslu á stöðuleikastýringu (19/04/2010)
Toyota í Evrópu hefur tilkynnt um innköllun á Land Cruiser 150 bifreiðum vegna uppfærslu á stöðuleikastýringu. Í undantekningartilvikum, þegar tekin er beygja á miklum hraða er mögulegt að bíllinn renni til án þess þó að ökumaður missi stjórn á honum. Til að koma í veg fyrir þetta verður hugbúnaður stöðuleikastýringarinnar uppfærður.
Haft verður samband við eigendur þeirra 26 bifreiða sem komnar eru í notkun hér á landi og kalla þarf inn. Um tuttugu Land Cruiser bifreiðar eru væntanlegar til landsins á næstunni og falla þær einnig undir þessa innköllun.
Ekki er vitað til þess að slys hafa orðið af þessum völdum í Evrópu og undir öllum venjulegum kringumstæðum og í eðlilegum akstri er bíllinn öruggur. Innköllunin á einnig við um Lexus GX 460 jeppa sem ekki eru á markaði hér á landi. Innköllunin nær ekki til annarra gerða af Toyota og Lexus.
Bréf til bifreiðaeigenda (22/02/2010)
Eigendur þeirra bifreiða sem eru í innköllun vegna eldsneytisgjafar fá tvö bréf frá Toyota á Íslandi. Allir eiga að hafa fengið fyrra bréfið sem staðfestir að bíll þeirra sé í innkölluninni. Síðan kemur annað bréf þegar komið er að því að fá bílinn inn á verkstæði til skoðunar og viðgerðar.
Útsending á seinna bréfinu er þegar hafin og verður það sent út smátt og smátt á næstu vikum. Lokið verður við innköllun og viðgerð á öllum bílum fyrir lok maí.
Þeir eigendur Toyotabifreiða sem finna fyrir einhverju óvenjulegu í eldsneytisinngjöf bílsins áður en hann verður kallaður inn til viðgerðar eru eindregið hvattir til að hafa samband við næsta viðurkennda þjónustuaðila Toyota strax.
Þeim Toyotaeigendum sem telja að bifreið þeirra falli undir innköllunina en hafa ekki fengið bréf er bent á að hafa samband við þjónustuver Toyota í síma 570 5000.
Tilkynnt um innköllun á Toyotabifreiðum á Íslandi vegna viðgerðar á eldsneytisinngjöf (11/02/2010)
Í dag verða póstlögð bréf til eigenda þeirra Toyotabifreiða á Íslandi sem kalla þarf inn til viðgerðar á eldsneytisinngjöf. Um 5.000 bílar verða kallaðir inn hér á landi og eru bréf til allra eigenda þeirra send út á sama tíma og berast þau á næstu dögum.
Eigendur bílanna fá síðan tilkynningu þegar komið verður að því að fá bílinn inn til viðgerðar. Verkið mun taka 45 – 60 mínútur og er eiganda bílsins að kostnaðarlausu. Áætlað er að lokið verði að gera við alla þá bíla sem falla undir þessa innköllun hér á landi í lok maí 2010.
Þeir eigendur Toyotabifreiða sem finna fyrir einhverju óvenjulegu í eldsneytisinngjöf bílsins áður en hann verður kallaður inn til viðgerðar eru eindregið hvattir til að hafa samband við næsta viðurkennda þjónustuaðila Toyota strax.
Þeim Toyotaeigendum sem telja að bifreið þeirra falli undir innköllunina en fá ekki bréf á næstu dögum er bent á að hafa samband við þjónustuver Toyota í síma 570 5000.
