Toyota með fimm bíla á topp tíu á síðasta ári

13.01.2009 - 50.000 Toyota- og Lexusbifreiðar í notkun á Íslandi
Af tíu vinsælustu fólksbílunum hér á landi á síðasta ári eru fimm frá Toyota. Mest seldi bíllinn árið 2008 var Land Cruiser 120 en 485 bílar af þeirri gerð voru skráðir á síðasta ári. Í öðru sæti er Yaris með 478 nýskráningar.

9.026 nýjar fólksbifreiðar voru skráðar á síðasta ári samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu. Þar af voru 2.311 frá Toyota eða 25,6%.

1.234 nýjar sendibifreiðar voru skráðar á síðasta ári. Þar er Toyota Hilux í fyrsta sæti, en 181 bifreið var skráð á síðasta ári. Hlutdeild Toyota í þessum flokki er 23,9%

Þetta er 19. árið í röð sem Toyota er mest seldi bíllinn á Íslandi og hefur Toyota á Íslandi fengið viðurkenningu frá Toyota Motor Corporation fyrir að selja flestar fólks- og sendibifreiðar á síðasta ári, sem og flestar bifreiðar samanlagt. Er þetta þriðja árið í röð sem Toyota á Íslandi fær þessa viðurkenningu.

75 nýjar Lexus bifreiðar voru skráðar árið 2008, en Lexus er í eigu Toyota og eru Lexusbifreiðar fluttar inn af Toyota á Íslandi. Samanlagt eru nú um 50.000 Toyota- og Lexusbifreiðar í notkun á Íslandi. Þar af eru um 1.000 Lexusbifreiðar.

Ekki er búist við jafn mikilli bílasölu á þessu ári og 2008, en þó hefur sala á Toyota bílum verið nokkuð lífleg á fyrstu dögum ársins. 23 fólksbílar hafa selst í janúar og þar af eru 11 frá Toyota.

15 vinsælustu fólksbílarnir árið 2008:

Tegund

Undirtegund

Fjöldi

1

TOYOTA

LAND CRUISER 120

485

2

TOYOTA

YARIS

478

3

SKODA

OCTAVIA

410

4

TOYOTA

AURIS

289

5

TOYOTA

RAV4

280

6

SUBARU

LEGACY

255

7

TOYOTA

LAND CRUISER 200

201

8

SUZUKI

GRAND VITARA

193

9

HONDA

CR-V

188

10

HYUNDAI

GETZ

173

11

NISSAN

QASHQAI

170

12

TOYOTA

AVENSIS

170

13

HYUNDAI

I 30

165

14

SUBARU

FORESTER

164

15

TOYOTA

COROLLA

164

Senda á