Vel heppnaður þjónustudagur Toyota

25.05.09 - Góð stemmning var hjá sölu- og umboðsaðilum Toyota í  Kópavogi, Reykjanesbæ, á Ísafirði, Selfossi og Akureyri laugardaginn 16. maí er þjónustudagur Toyota var haldinn í fimmta sinn.

Hjá fjölda Toyotaeigenda er það orðin hefð og hluti af stemmningunni í undirbúningnum fyrir Eurovisonkvöldið að koma við hjá Toyota og láta þvo bílinn og á því var engin breyting að þessu sinni.

Á annað þúsund bíla runnu í gegnum vel skipulagðar þvottastöðvar og gæddu gestir sér síðan á grilluðum pylsum í lokin.

 

 

 

 

Senda á