Rannsóknir á Surtsey styrktar af Toyota á Íslandi

Þann 5.júní síðastliðinn, þegar 40 ár voru liðin frá lokum Surtseyjargossins, var undirritaður samningur milli Toyota á Íslandi og Náttúrufræðistofnunar Íslands um stuðning við rannsóknir í Surtsey. Samningurinn kveður á um að Toyota styrki árlegar vöktunarferðir Náttúrufræðistofnunar til Surtseyjar næstu þrjú árin.

Surtsey hefur verið vöktuð síðan gosinu lauk. Jarðvísindamenn hafa einkum fylgst með kólnun eyjarinnar, móbergsmyndun, sjávarrofi og landmótun. Líffræðingar hafa farið til Surtseyjar um miðjan júlí ár hvert og leitað að nýjum tegundum plantna, smádýra og fugla. Þeir hafa fyglst náið með þróun lífríkisins sem hefur tekið miklum stakkaskiptum á síðustu árum eftir að þétt mávabyggð tók að myndast í eynni. Á hverju ári finnast þar nýjar tegundir og lífríkið verður fjölbreyttara. Allar líkur eru á að sú þróun haldist áfram næstu áratugina og að lífríki Surtseyjar taki á sig svipaða mynd og í öðrum úteyjum Vestmannaeyja. Árið 2004 verpti lundi, einkennisfugl eyjanna, í fyrsta sinn í Surtsey og fylgjast vísindamenn vel með því hvernig honum gengur að ná þar fótfestu.

Sýning Náttúrufræðistofnunar í Þjóðmenningarhúsinu

Sýningin Surtsey - jörð úr ægi stendur nú yfir í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Sýningin rekur myndunar- og þróunarsögu Surtseyjar fram til dagsins í dag og spáir fyrir um framtíð eyjarinnar og þróun lífríkis hennar næstu 120 árin. Á sýningunni er beitt nýjustu sýningartækni og margmiðlun við kynningu á ómetanlegum niðurstöðum vísindarannsókna í Surtsey. Henni er ætlað að höfða jafnt til forvitinna barna sem fræðimanna og þess er vænst að gestir skynji kraft eldsumbrotanna um leið og þeir fræðast um eðli þeirra og sköpunarverk. Fjölmargir vísindamenn, hönnuðir, hugbúnaðarsmiðir og tæknimenn hafa komið að undirbúningi sýningarinnar. Hún styðst m.a. við einstakar ljósmyndir og kvikmyndir sem teknar hafa verið af Surtseyjareldum og í eynni frá upphafi og fram á þennan dag. Gert er ráð fyrir að sýningin verði síðar flutt til Vestmannaeyja og sett upp í nýrri Surtseyjarstofu sem þar mun rísa árið 2008.

Surtsey tilnefnd á Heimsminjaskrá UNESCO

Endurnýjuð tilnefning Surtseyjar á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna var send til UNESCO í janúar 2007. Forsendur fyrir tilnefningu Surtseyjar á heimsminjaskrá eru tvíþættar. Annars vegar er eyjan einstakt dæmi um þróunarsögu jarðar, þýðingarmikil ferli í landmótun, bergmyndun og jarðeðlisfræði. Hins vegar er hún einstök vegna þess að þar hafa skapast og verið nýtt tækifæri til þess að fylgjast með aðflutningi, landnámi og þróun tegunda lífvera á lífvana landi og hvernig vistkerfi á landi og í hafinu verða til.

Meiri fróðleik um Surtsey og Surtseyjarsýninguna má finna á eftirfarandi tenglum

www.surtsey.is
www.thjodmenning.is
www.ni.is

Senda á