Gott gengi Toyota í Sparaksturskeppni Atlantsolíu og FÍB

07.04.09 - Toyota tók þátt í Sparaksturskeppni Atlantsolíu og FÍB sem haldin var miðvikudaginn 20. maí 2009. 20 bílar tóku þátt í keppninni sem skipt var í 7 flokka eftir vélarstærð bílanna. Toyota tók þátt í fimm flokkum og sigraði í þremur þeirra.

Í flokki bensínbifreiða með vélarstærð 1.201 til 1.600 cc sigraði Toyota Yaris Sol með 4,44 lítra á hundraði. Ökumaður var Sigurrós Pétursdóttir.

Í flokki 1601 til 2000 cc sigraði Toyota Avensis með 5,07 lítra á hundraði. Ökumaður var Rúnar Már Hjartarson.

Í flokki díselbifreiða með 2500 til 3500 cc vél sigraði Toyota Landcruiser með 6,25 lítra á hundraði. Ökumaður var Jóhannes Egilsson

 

 

Senda á