2 gull og 3 silfur

Toyota hefur oftar en ekki náð góðum árangri í þessari keppni og mætti að þessu sinni til leiks með sex bíla, þrjá fólksbíla, jeppling og tvo jeppa. Toyota átti þannig fulltrúa í 5 flokkum af tíu í keppni bifreiðaumboða.
Að venju var keppnin hörð og umboðunum greinilega mikið í mun að sýna hvers bílar þeirra eru megnugir þegar kemur að sparakstri, enda mikilvægur þáttur í hugum margra þegar huga skal að bifreiðakaupum. Það kom líka í ljós að eyðslutölur bifreiðanna voru oft talsvert undir opinberum tölum frá umboðunum og því greinilegt að hægt er að hafa mikil áhrif á það hversu umhverfisvænn bíllinn getur verið.

Toyota sýndi mikinn stöðugleika í keppninni og sigraði í tveimur flokkum en lenti í öðru sæti í þremur. Jepparnir frá Toyota, Land Cruiser 120 og Land Cruiser 200, unnu báðir sína flokka og var Land Cruiser 120 að verja titilinn frá því í fyrra. En þó Land Cruiser 120 hafi sigrað með miklum yfirburðum í sínum flokki (eyddi 7,12 l/100 km) þá vakti sparneytni Land Cruiser 200 sérstaka athygli en hann eyddi aðeins 8,71 l/100 km, sem er ótrúlegur árangur fyrir svo stóran bíl.
Yaris dísil (3,80 l/100 km), Avensis (5,72 l/100 km) og RAV4 (5,05 l/100 km) lentu allir í 2. sæti í sínum flokkum en Auris (4,12 l/100 km) komst ekki á verðlaunapall í Yaris-flokknum, enda stærri og þyngri bíll en þeir sem fyrir ofan hann voru.

2 gullverðlaun og 3 silfurverðlaun voru þó staðreynd og geta söluaðilar Toyota á Íslandi ekki verið annað en ánægðir með þann árangur. Toyota hefur alltaf lagt mikinn metnað í að bílar sínir séu sem eyðslugrennstir og er árangurinn í sparaksturskeppninni staðfesting á því að sú hugsjón skilar sér í framleiðslu á umhverfisvænni bílum.
Toyota á Íslandi þakkar Atlantsolíu og FÍB fyrir þetta góða framtak og mun mæta með hóp af vösku fólki og sparneytnum bílum í keppnina að ári.
Fyrir nánari upplýsingar, sjá vef Atlantsolíu, www.atlantsolia.is.
