Toyota og Skógræktarfélag Íslands
20.08.2008 - Toyota á Íslandi hefur frá árinu 1990 stutt við skógrækt í góðri samvinnu við Skógræktarfélag Íslands. Nú er verið að rækta svokallaða Toyota-skóga á sex stöðum á landinu.
Í tengslum við aðalfund Skógræktarfélags Íslands sem haldinn var á Ísafirði í ágúst fóru fundarmenn í skoðunarferð í Toyotaskóginn á Söndum í Dýrafirði. Við það tækifæri var skilti við skóginn afhjúpað auk þess sem nestisaðstaða var tekin í notkun.
Við hvetjum ferðamenn til að koma við í Toyotaskóginum á Söndum í Dýrafirði og skoða fallegt skógarumhverfi sem er rammað inn af vestfirskum fjöllum.
Á myndunum eru Magnús Kristinsson, stjórnarformaður Toyota á Íslandi, Sigrún Guðmundsdóttir, varaformaður Skógræktarfélags Dýrafjarðar sem sér um ræktun Toyotaskógarins á Söndum og Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands.


