Samningur milli Salarins og Toyota

Toyota á Íslandi verður aðalstyrktaraðili Salarins, tónlistarhúss Kópavogs, samkvæmt samstarfssamningi sem undirritaður var í Salnum þann 18. ágúst 2010 af þeim Guðrúnu Pálsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, og Úlfari Steindórssyni, forstjóra Toyota á Íslandi.

Markmiðið með samningnum er að efla enn frekar menningu og listir í Kópavogi. Samningurinn nær til næstu tveggja ára og skal Toyota greiða Salnum 1,5 milljónir króna á ári. Fénu verður varið til markaðs- og kynningarmála fyrir Salinn.

„Við gerumst aðalstyrktaraðilar Salarins núna í framhaldi af þeim margvíslega stuðningi sem Toyota hefur veitt menningarstarfsemi í Kópavogi á liðnum árum. Kópavogsbúar geta verið stoltir af þessu húsi og því starfi sem þar er unnið og við viljum leggja okkar af mörkum til þess að starfsemi Salarins verði sem blómlegust“ segir Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi.
"Það er mikið ánægjuefni að Toyota skuli leggja okkur lið og gerir okkur kleift að kynna starfsemi Salarins með meiri krafti en áður," segir Elísabet Sveinsdóttir, forstöðumaður Salarins.

Í samningnum  lýsir Toyota jafnframt yfir vilja sínum til þess að vera Salnum innan handar með lánsbifreiðar handa erlendum gestum. Á móti fær Toyota á Íslandi m.a. afnot af Salnum svo sem vegna funda og fyrirtækjatónleika tvisvar á ári án endurgjalds.

Salurinn var tekinn í notkun 2. janúar 1999 og er hann fyrsti sérhannaði tónleikasalur landsins. Á milli fimmtíu til sextíu þúsund manns sóttu tónleika í Salnum á liðnu ári.

Senda á
Prentað þann 4. febrúar 2012