Prius þolakstrinum er lokið

10.09.2009 - Í gær kl. 17:35 lauk Prius þolakstrinum í miðborg Reykjavíkur. Prius er svokallaður hybrid- eða tvinnbíll og er knúinn bæði rafmótor og bensínvél.

Prius hentar einkar vel í borgarakstri því hann tekur af stað á rafmótornum eingöngu og bensínvélin er ekki í gangi þegar stoppað er t.d. við gatnamót og gangbrautir eða þegar umferð er hæg.

Niðurstöður:

Eknir km:      1.052

Aksturstími í klukkustundum  55

Meðaleyðsla á 100 km  4,47 l

Þolaksturinn hófst sl. þriðjudag, 8. september kl. 10:00. Ekið var á vöktum allan sólarhringinn og lá leið bílsins aðallega niður Laugaveg og um Kvosina. Á þeim kafla leiðarinnar nýtti Prius eingöngu rafmagn og því var útblástur enginn. Á milli var ekið á bensínvélinni um Hringbraut og Sæbraut en þannig fær bíllinn rafmagn inn á rafhlöðuna sem nýtt er í hægum akstri og þegar tekið er af stað.

Um dæmigerðan miðborgarakstur var að ræða. Ávallt voru tveir fullorðnir í bílnum, leitast var við að fylgja eðlilegum umferðarhraða miðað við aðstæður á hverjum tíma og í akstrinum þurfti að stoppa bílinn u.þ.b. 2.300 sinnum og taka jafn oft af stað.

Ólafur Guðmundsson, varaformaður FÍB og Formúla 1 dómari innsiglaði bensíntank bílsins áður en lagt var af stað og staðfestir árangurinn. 

Senda á