Grænt skref um ókeypis í stæði fyrir visthæfa bíla í Reykjavík

Borgarstjórinn í Reykjavík, formaður umhverfisráðs ásamt formanni Bílgreinasambandsins og forsvarsmönnum bifreiðaumboðanna kynntu á blaðamannafundi nýjung í bílastæðamálum Reykjavíkur. Kynnt voru ókeypis bílastæði fyrir visthæfar bifreiðar og sérstök bílastæðaskífa sem ökumenn visthæfra bifreiða geta notað.

Bílgreinasambandið mun ásamt bifreiðaumboðum landsins sjá um að dreifa bílastæðaskífum Reykjavíkurborgar fyrir visthæfa bíla. Þetta mun tryggja að sem flestir fái vitneskju um skilgreiningu Reykjavíkurborgar á lágmarksvisthæfi bifreiða, læri að þekkja og nota bílastæðaskífurnar. Auk þess verður mun þægilegra fyrir neytendur en ella að nálgast skífurnar þar sem fólk getur farið í umboðin til að fá úr því skorið hvort tiltekin bifreið uppfyllir skilyrði Reykjavíkurborgar og fengið bílastæðaskífu á sama stað.

 

Þeir bílar frá Toyota sem falla í þennan visthæfa flokk og voru til sýnis á blaðamannafundinum 2.ágúst voru: Toyota Prius 1,5 VVT-i, Toyota Aygo 1,0 og Toyota Yaris 1,4 D-4D.

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Bílgreinasambandsins: www.bgs.is
Þar er listi yfir þá bíla sem uppfylla skilyrði Reykjavíkurborgar um lágmarksvisthæfi og verður sá listi uppfærður reglulega þegar nýir bílar bætast við sem uppfylla skilyrðin.

Senda á