Plöntum komið í góðar hendur
27.11.2008 - Nýlega var nemendum í Lindaskóla í Kópavogi afhentar plöntur sem starfsfólk Toyota ræktaði í sérstökum umhverfismánuði fyrirtækisins. Ákveðið var að koma plöntunum í hendur nemenda í Lindaskóla því skólinn tekur þátt í verkefninu „Skólar á grænni grein“ og skólinn fær að flagga Grænfánanum sem er tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Í Lindaskóla er umhverfishópur sem starfar undir leiðsögn Kristins Svavarssonar, kennara og var hópnum falið að sjá um plönturnar hér eftir.
Á myndinni hér fyrir ofan er umhverfishópurinn í Lindaskóla ásamt Jóhannesi Hilmarssyni, húsverði og fulltrúa í umhverfisnefnd skólans, Gunnsteini Sigurðssyni, skólastjóra, Kristni Svarssyni, kennara, Margréti Ármann, deildarstjóra og Úlfari Steinsdórssyni, forstjóra sem afhenti plönturnar fyrir hönd Toyota.
