Hjálparstarf kirkjunnar fær afnot af Toyota Hiace sendibifreið
18.11.2008 - Nýlega afhenti Toyota á Íslandi Hjálparstarfi kirkjunnar Toyota Hiace sendibifreið til afnota. Bifreiðin verður notuð til almennra snúninga í fjölþættu hjálparstarfi á vegum kirkjunnar meðal annars til að ná í matvöru sem fyrirtæki gefa í hjálparstarfið. Einnig eru töluverðir flutningar vegna árlegrar sölu friðarkertanna sem mörgum finnast ómissandi um jólin.

Á myndinni eru frá vinstri Sr. Elínborg Sturludóttir og Lóa Skarphéðinsdóttir í stjórn Hjálparstarfs kirkjunnar, Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri, Þorsteinn Pálsson, formaður stjórnar Hjálparstarfsins og Magnús Kristinsson, stjórnarformaður Toyota á Íslandi.
