Innköllun vegna VGRS

Toyota í Evrópu hefur ákveðið að innkalla 7.800 bíla af gerðunum Land Cruiser 100 og Lexus LX470 vegna bilunar í VGRS er búnaðar í stýri. Búnaðurinn breytir niðurgírun í stýrisvél þannig að fljótlegra er að beygja bílnum þegar ekið er hægt t.d. þegar lagt er í stæði.
Búnaðurinn getur bilað við mikið högg á stýrisganginn sem síðan getur leitt til þess að stýrið fari úr sambandi við endurtekna harkalega notkun.

Toyota á Íslandi flutti ekki inn bíla með þessum búnaði.

Við vitum að einstaklingar hafa flutt inn notaða bíla af þessum gerðum með VGRS búnaði og þá einkum frá Þýskalandi og mun Toyota á Íslandi gera ráðstafanir til að ná til eigenda bílanna.

Nánari upplýsingar veitir þjónustuver Toyota á Íslandi í síma 570 5070.

Senda á
Prentað þann 4. febrúar 2012