Blái herinn að verki í Reykjanesfólkvangi

Tómas Knútsson, sem stýrt hefur hreinsunarstarfi Bláa hersins undanfarin ár með góðum stuðningi Toyota á Íslandi, Hringrásar og Reykjanesbæjar brást skjótt við og mætti með öflugt lið í morgun, fjarlægði bílflökin og fargaði á réttan hátt.
„Það má víða sjá bílflök á víðavangi og sem dæmi get ég nefnt að á ferð inni austur á land um daginn taldi ég vel á annað hundrað bílflaka við þjóðveginn“ segir Tómas Knútsson. Hann vill hvetja bíleigendur til að farga ónýtum bílunum þannig að umhverfið beri ekki skaða af.
Tekið er við bílflökum á yfir 50 stöðum um allt land. Nánari upplýsingar fást hjá Úrvinnslusjóði.
www.urvinnslusjodur.is
Blái herinn
Blái herinn var stofnaður árið 1998 og hefur beitt sér fyrir margvíslegum umhverfisverkefnum, einkum hvað snertir hreinsun strandlengjunnar og sjávar með góðum stuðningi Toyota á Íslandi, Hringrásar og Reykjanesbæjar. Árið 2003 hlutu samtökin Umhverfisverðlaun Reykjanesbæjar. Árið 2004 hlutu þau Umhverfisviðurkenningu Pokasjóðs og Ungmennafélags Íslands.
www.blaiherinn.is
Reykjanesfólkvangur
Reykjanesfólkvangur var stofnaður með reglugerð árið 1975. Fólkvangurinn er um 300 km2 að stærð, langstærsta friðlýsta svæðið sinnar tegundar hér á landi. Mörk hans að austan eru sýslumörk Gullbringu- og Árnessýslu og að norðan tengist hann Bláfjallarfólkvangi. Vesturmörk fólkvangsins eru vestan við Undirhlíðar og Núpshlíðarháls í sjó við Seltanga og suðurmörk fylgja strandlínu.
www.gamli.umhverfissvid.is/reykjanesfolkvangur
Hér er hægt að lesa um umhverfisstefnu Toyota
Umhverfisstefna Toyota

