Nýjar CO2 reglur um bifreiða- og vörugjöld

Fólksbílar og jeppar

Frá 1. janúar 2010 gilda ný lög um bifreiða- og vörugjöld. Í stað þess að miða gjöldin við vélarstærð eru gjöldin ákveðin eftir magni koltvísýrings ( CO2 ) í útblæstri bílsins á hvern ekinn kílómetra.

Vörugjöld

Við álagningu vörugjalda er bifreiðum skipt í 10 flokka eftir magni CO2 í útblæstri.

FlokkurCO2 í útblæstri - g/kmVörugjalda %
A0 - 800
B81 - 10010
C101 - 12015
D121 - 14020
E141 - 16025
F161 - 18035
G181 - 20036
H201 - 22544
I226- 25048
Jyfir 25052

Þessi tafla gildir fyrir árið 2011. Gert er ráð fyrir að hún breytist 2012.

Lægri vörugjöld eru lögð á ýmsar bifreiðar sem notaðar eru í atvinnustarfsemi t.d. sendiferðabifreiðar.

Bifreiðagjöld

Útreikningar bifreiðagjalda breyttust nú um áramótin vegna nýrrar lagasetningar um að vörugjöld bifreiða fari eftir magni CO2 í útblæstri. Samhliða þessari breytingu þá eru bifreiðagjöld nú einnig reiknuð útfrá CO2 gildi bílsins eða eftir því hversu mikið / lítið bíll mengar.

Bílar sem hafa CO2 gildi 121 gr/km eða lægra greiða 5.000 kr. (Upphæð greiðist 2x á ári)
Dæmi:

  • Prius - CO2 - 92 gr/km greiðir 5.000 kr.
  • Aygo - CO2 = 106 gr/km greiðir 5.000 kr.
  • Yaris – CO2 = 119 gr/km greiðir 5.000 kr.

Greiða skal 120 kr. fyrir hvert gr. umfram 121 gr/km þannig að ef bíll er með CO2 gildi 122 gr/km þá þarf hann að greiða 5.120 kr.

Bifreið sem er með CO2 gildi 157 gr/km reiknast út með eftirfarandi hætti:

  • *Greiðir alltaf 5.000 fyrir fyrstu 121 gr. síðan:
  • 157 – 121 = 36 gr
  • 36 * 120 kr = 4.320
  • 4.320 + 5.000* = 9.320 kr. (Þessi upphæð greiðist 2x á ári)

Sé bifreið ekki með skráð CO2 gildi þá skal notast við ákveðna reiknireglu sem miðast við eigin þyngd bifreiðarinnar. (Formúlan er eftirfarandi: Eigin þyngd x 0,12 + 50 = reiknað CO2 gildi) Alltaf greiðist 5.000 kr. fyrir fyrstu 121 gr.
Dæmi:

  • Eigin þyngd bifreiðar = 1.400 kg
  • 1.400 x 0,12 + 50 = 218 (reiknað CO2 gildi)
  • 218 – 121 = 97 gr
  • 97 * 120 kr = 11.640 kr
  • 11.640 + 5.000* = 16.640 kr. (Þessi upphæð greiðis 2x á ári)

CO2 gildi og eigin þyngd bifreiðar er að finna í skráningarskírteini hvers bíls. Sjá neðst hér á síðunni hvar það er að finna.

** Hér hægra megin á síðunni er bæði tafla þar sem finna má útreiknað bifreiðagjald fyrir CO2 gildi umfram 121 gr/km, og einnig excel skjal sem reiknar út bifreiðagjöld miðað við uppgefið CO2 gildi eða útfrá eigin þyngd bifreiðar.

Umferðarstofa bætir við reikninginn 350 kr. sem er úrvinnslugjald

**Bæði tafla með gildum sem og excel skjal skal eingöngu nota til viðmiðunar. Toyota ábyrgist ekki að þær upplýsingar eða útreikningar sem hér koma fram séu óskeikular. Vinsamlegast leitið til Umferðarstofu til að fá nákvæmar upplýsingar.

Hér má sjá skráningarskírteini sem sýnir hvar finna má CO2 tölu bílsins.

Senda á
Prentað þann 23. febrúar 2012