Blái herinn að störfum
22.05.2008 - Þessa dagana er Blái Herinn, sem á undanförnum árum hefur hreinsað hafnir og strandlengjuna víða um land verið að störfum nálægt Garðskagavita. Eftir stórviðri vetrarins var töluvert af netadræsum í fjörunni auk annars rusls sem skolað hafði á land. Búið er að safna um 15 tonnum af netum og rusli. Blái herinn hefur notið aðstoðar unglinga í Garðinum við hreinsunina sem lýkur með köfun og hreinsun í höfninni í Garði.

Blái herinn hefur hreinsað vel yfir 300 tonn af rusli við strandlengju Íslands, aðallega á Reykjanesi, en einnig í Vestmannaeyjum og á Akranesi. Af hafsbotni hafa komið yfir 40 tonn af rusli þar á meðal eru yfir 100 rafgeymar.
Toyota og Blái Herinn vinna saman að átakinu Hreinn Ávinningur sem felst í hreinsurnarstarfi og fræðslu á sviði umhverfismála.
