Formúlufréttir frá Malasíu

07.04.09 - Toyota liðið náði verðlaunasæti í annað skiptið í röð í keppninni í Malasíu um síðustu helgi. Timo Glock komst á pall í annað sinn á ferlinum og Jarno Trulli náði einnig stigum í þessari sögulegu keppni sem háð var í mikilli rigningu. Þar sem keppnin var slegin af áður en þrír fjórðu af keppninni voru að baki var einungis helmingi stiganna úthlutað. Toyota ökumennirnir standa vel að loknum tveimur keppnum, Trulli er í þriðja sæti með 8,5 stig og Glock er í fjórða sæti með 8 stig. Ökumenn Brawn liðsins, Button og Baricello eru á toppnum með 15 og 10 stig.

Trulli sagði eftir keppnina að hann væri ánægður fyrir hönd liðsins, en fannst óheppnin elta sig um helgina. Sérstaklega var sárt að ná ekki ráspól en sáralitlu munaði á Trulli og Button í keppninni um ráspólinn. Þá var dekkjavalið erfitt verkefni.

Glock sagði keppnina hafa verið erfiða. Hann byrjaði í þriðja sæti en var kominn 8. sæti eftir fyrsta hring. Rétt dekkjaval hafi síðan komið sér vel og skilaði honum í þriðja sæti eftir að aðeins höfðu verið eknir 33 hringir af 56 þegar keppninni lauk.

Tadashi Yamashina, liðsstjóri Toyota var að vonum ánægður með árangur liðsins og sinna manna og sagði keppnina sýna hversu samkeppnisfært liðið væri í ár. Vissulega væru það vonbrigði að geta ekki klárað keppnina en við því var ekkert að gera. Nú væri ekkert annað í stöðunni en að standa sig í næstu keppni sem haldin verður á Shanghai brautinni í Kína 19.apríl.

 

 

 

 

 

Senda á