Um Toyota

7 góðar ástæður þess að kaupa Toyota. #1 | #2 | #3 | #4 | #5 | #6 | #7

Toyota er stolt af því að njóta trausts viðskiptavina sinna á Íslandi.  Toyota einsetur sér jafnframt að endurgjalda það traust með því að standa vörð um hagsmuni þeirra sem gerst hafa viðskiptavinir þess með því að festa kaup á þær 45.000 Toyota bifreiðar sem í umferð eru hér á landi. Þannig hefur Toyota t.a.m. gætt þess að verðfella ekki þær Toyota bifreiðar sem í umferð eru með því að grípa til ofurafslátta eða útsölu á nýjum bifreiðum þegar bifreiðamarkaðurinn hefur átt undir högg að sækja – eins og raunin hefur verið síðan snemma árs 2008.

Toyota lítur á viðskiptatengsl sín sem langtíma samband og gætir sín á því að falla ekki í gildru skammtíma söluaukningar með gylliboðum og markaðsbrellum.  Traust það sem Toyota hefur áunnið sér á íslenskum bifreiðamarkaði er afrakstur heilinda í viðskiptum og þjónustu síðustu 40 árin og því trausti verður ekki fórnað með vanhugsuðum aðgerðum, þvert gegn hagsmunum eigenda Toyota bifreiða á Íslandi.