Um Toyota á Íslandi
Toyota á Íslandi er innflytjandi Toyota bifreiða, vara- og aukahluta. Starfsmenn fyrirtæksins byggja gildi sín og viðmið í starfi á The Toyota Way; stjórnunar-, þjónustu og mannauðsstefnu Toyota. Gagnkvæm virðing og náin samvinna eru hornsteinar í daglegri starfsemi Toyota á Íslandi. Hverri áskorun er tekið fagnandi hendi og leita starfsmenn stöðugt leiða til að tryggja áframhaldandi framfarir í öllu því sem við kemur starfsemi fyrirtækisins og þjónustu gagnvart viðskiptavinum þess.
Í dag starfa um 34 starfsmenn hjá fyrirtækinu á fimm sviðum, sölusviði, þjónustusviði, markaðssviði, fjármálasviði, starfsmannasviði og innri starfsemi. Toyota á Íslandi hefur á að skipa metnaðarfullt og samhent starfsfólk og býður gott og líflegt starfsumhverfi þar sem einstaklingurinn fær að njóta sín.
Umhverfismál eru einnig stór þáttur í starfi Toyota á Íslandi. Toyota leggur mikla áherslu á að minnka útblástur koltvísýrings og annarra skaðlegra efna úr bílum sínum og vera leiðandi í tækni til að vernda auðlindir jarðar með notkun nýrra orkugjafa. Það hefur viðamikla umhverfisstefnu sem snýr að því að koma á betra jafnvægi milli manns, bíls og jarðar.
Hafir þú einhverjar nánari spurningar um Toyota á Íslandi þá vinsamlegast hafðu samband við þjónustuver okkar í síma 570 5000.
